Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Page 42
i
62 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006
Veiðimál DV
Gufudalsá með rúmlega 1000 bleikjur
Umsjón: Jón Mýrdal (myrdal@dv.is)
Allar ábendingar eru vel þegnar; veiðisögur,
óvænt veiði, hverjir voru hvar við veiðar.
Allt sem við kemur veiðum og veiðimennsku.
Annað árið í röð eru veiðitölur
Gufudalsár í Austur-Barðastranda
sýslu í hróplegu ósamræmi við
niðursveiflu í sjóbleikjuám
landsins.
Veiði er lokið í Gufudaln-
um þetta sumarið og veidd-
ust rúmlega 1000 bleikjur
auk ijórtán laxa og er það
aukning frá fyrra ári, en þá var
einnig aukning frá árinu á undan.
Það sem er athyglisvert við veiðina
í Gufudalsá er að hún byggist upp
á smærri bleikju, frá hálfu til
tveggja punda, en það er ein
mitt sú stærð sem menn
sárlega kvarta undan að
vanti á silungasvæðum
annars staðar á landinu.
Hvað veldur því að eitt
lítið landsvæði haldi sínu
er álitamál, en heyrst hefur
að ágætis veiði sé á sjóbleikju í
öðrum ám á svipuðum slóðum.
Valinkunnir veiðimenn rifja upp skemmtileg atvik frá sumrinu sem nú er senn á enda
Selá blómstraði og
Víðidalurinn klikk
Það fer hrollur um veiðimenn þegar sumarið er
búið. Það er gaman að segja ffá því að þeir veiði-
menn sem einbeita sér að silungsveiði eru greinilega
miklu ánægðari með sumarið en þeir sem kaupa sér
dýr laxveiðileyfi.
Stórar fréttir úr Selá
Eiríkur St. Eiríksson, höfundur Stangveiðihand-
bókarinnar, er flestum stangveiðimönnum að góðu
kunnur enda er hann höfundur Stangveiðihandbók-
arinnar. Eiríkur er mikill veiðimaður og hann ætl-
ar að deila með okkur sínu veiðisumri. „Ég byrjaði
í opnunarholli Norðuráar og þá veiddist ekki neitt.
Mig minnir að það hafi komið þrír eða fjórir laxar
á land á opnunardaginn. Þetta er bara of snemmt,
fiskurinn er ekki byrjaður að ganga og tveggja ára
fiski hefur fækkað," segir Eiríkur um upphaf veiði-
sumarsins hjá sér.
„Síðan fór ég í Svartá í byrjun júlí, það gekk von-
um framar," heldur Eiríkur áfram. „Við settum í
átta fiska og náðurn fjórum á land. Ég hef ekki veitt
þarna mikið en svæðið er mjög skemmtilegt. Ég fór
svo í byrjun september í Selá og það var mokveiði
og mildð af fiski. Ég náði níu fiskum í þessum túr."
Nýlega var Eiríkur á Nessvæði í Laxá. „Það var nú
bara frekar rólegt en þar er nú bara veitt og sleppt
þarna. Fiskurinn sem ég veiddi þarna var tekinn af
bát og það var bara mjög gaman," segir hann.
í heildina telur Eiríkur sumarið hafa verið nokk-
uð gott í veiðinni:
„Stóru fréttirnar á þessu sumri er gríðarlega
góð veiði í Selá. Vonbrigðin voru þau að það vant-
ar tveggja ára fisk. Svo er það skipbrotið í Víðidalsá,
þar hækkuðu veiðileyfi mikið og veiðin er mjög
slæm."
September frábær
Ingólfur Kolbeinsson, eig-
andi veiðivöruverslunarinnar
Vesturrastar, er mikill veiðimað-
ur og þykir vera mjög flinkur
með flugustöngina. Það þarf
ekki að kynna Ingó fyrir veiði-
mönnum því hann hefur stað-
ið við búðarborðið í Vesturröst
síðan elstu menn muna.
„f heildina þá verð ég að segja
að þetta sumar hafi verið mjög
gott. Varðandi laxveiðina þá er
hún eins og fýrri sumur sein af
stað en ágúst var góður og sept-
ember frábær á mörgum stöðum.
Silungsveiðin var fín eins og yfir-
leitt en byrjaði seinna en oft áður
vegna kulda í vor," segir Ingó.
Að því er Ingó segir voru
skemmtilegustu túramir hjá
honum í sumar veiðidagur á
Þingvöllum með fjölskyldunni
og veiðiferð í litla á fýrir austan
þar sem ekki eru merktir veiði-
staðir, ekkert veiðihús og engar
skiptingar. „Það er skemmti-
legast," segir hann. „Þeir sem
fara í veiði eiga að meta hverja
stund betur og hugsa meira um
að nota góðar græjur en hugsa
minna um að koma heim með
marga fiska."
Næsta sumar verður gott
„Ég er mikill áhugamaður
um vatnaveiði og hef verið mik-
ið vestur á Snæfellsnesi í vötn-
unum þar. Ætli þetta hafi ekld
verið um svona 20 til 30 veiði-
dagar sem ég komst þetta sum-
arið," segir Elvar Gunnarsson
sem starfar í Vesturröst.
„Ég fór minna en ég ætlaði
mér vegna anna héma í búð-
inni," segir Elvar. „Fiskamir vom
kannsld heldur minni en í fýrra.
Ætli stærsti sem ég veiddi hafi
ekki verið um 3 pund. Þetta vom
margir fiskar en ekki mjög stórir."
Elvar fór í Víðidalsána í júlí í
fýrsta sinn. Þar var lítið að hafa.
„Það var frekar súrt en engu að
síður fallegur staður til að vera
á. Mig langar svo til að kíkja í
sjóbirting núna fljótlega en þá
fer maður líklega eitthvað aust-
ur. Þetta veiðisumar kom ann-
ars bara nokkuð vel út miðað
við kulda sem einkenndi sum-
arið. Ég hef trú á því að næsta
sumar verði gott. Ég stefni að
sjálfsögðu í vatnaveiðina þar
sem ég á frábæra tvíbytnu sem
býður upp á alveg nýja mögu-
leika."
Aftur dottinn í veiðina
Stórleikarinn Siggi Sigur-
jóns er ekki bara frábær leikari
heldur er hann líka mikill veiði-
maður.
„Ég get sagt þér það að ég var
mjög mikill veiðimaður hérna
á árum áður," byrjar Siggi. „Ég
fór mikið á veiðar þótt ég væri
kannski ekki að veiða mikið.
Svo fór ég í golfið og þá kom
ég veiðinni ekki lengur fyrir í
stundaskránni."
f fyrrasumar tók Siggi aftur
til við stangveiðina. „Náði ég
aftur sömu hæðum og áður. Ég
fann mig aftur í þessu og veiddi
bara mjög vel á minn mæli-
kvarða," segir hann.
Siggi fór í Veiðivötn: „Þar átti
ég góðar stundir og varð alveg
heillaður af staðnum. Ég fór líka
í Hörðudalsá og gerði þar góða
veiði. Svo skrapp ég með félög-
um í Rangárnar og við veidd-
um allir vel þar og í Gufudalsá
á Barðaströndinni náði ég líka
vel í soðið."
Að eigin sögn er Siggi mest
í silungsveiði. „Ég ferðaðist
mikið í sumar og veiðistöng-
in var mjög ofarlega í skottinu.
Ég veiði mest á flugu, það hef-
ur bara þróast þannig hjá mér.
Ég prófaði í sumar létta stöng
númer 4 og ég gæti vel hugsað
mér að eignast þannig stöng í
framtíðinni."
Gæsaveiðin
gengurvel
Gæsaskyttur sem Veiðimálin
höfðu samband við höfðu ver-
ið að gera góða veiði seinustu
daga. Skytturnar töluðu um að
mikið væri komið af gæs á Suð-
urlandi. Þó að næturfrostið hafi
látið standa á sér þá virðist gæs-
in vera að sækja bæði í korn og í
nýræktina. Höfum við heyrt um
gæsaskyttur af Vesturlandi sem
höfðu náð um 50 gæsum í einu
morgunflugi um seinustu helgi.
Eins og allar gæsaskyttur vita þá
er blesgæsin friðuð á þessu ári
og gæta menn sín því að skjóta
hana ekki. Það er mál manna að
þessi vertíð verði betri heldur en
ífyrra.
LaxíMinnivallalæk
Það vita fáir en það gengur
lax á haustin í Minnivallalæk til
hrygningar. Þá hefur hann far-
ið upp fyrir fossinn Búða sem er
stuttu neðar í Þjórsá en ármót
Minnivallalækjar og Þjórsár. í
fossinum er fiskvegur og síðla
sumars gengur lax og sjóbirtingur
í einhverjum mæli þar upp.
Snemma í september fékk er-
lendur veiðimaður þennan lax
í Hólmakvíslum í Minnivalla-
læk og er það annar laxinn sem
veiðist á stöng í læknum svo vit-
að sé. Hinn veiddist í ágúst 1992,
svo langt er um liðið. Annars hef-
ur lækurinn verið lítið stundað-
ur það sem af er september, en í
gær skaust veiðimaður eftir há-
degi og fékk sex fiska. Oft virðast
tökur aukast er haustar, væntan-
lega minna um fæði þá og fiskur
orðinn „agressívari" er nær dreg-
ur hrygningu sem skýrir það. Að
sögn leigutaka þá er enn hægt að
nálgast veiðileyfi í Minnivallalæk.
Hægt er að skoða þau á vefsíð-
unni strengir.is
Slök veiðií Leirvogsá
Formiegri veiði í Leirvogsá er nú
að ljúka. Ljóst er að sumarið fer ekki
á spjöld sögunnar hvað veiði varð-
ar en áin rétt náði 300 laxa veiði á
stangirnar tvær. Þrátt fyrir umtals-
verðar göngur í gegnum teljarann
má segja að veiðin í sumar hafi vald-
ið vonbrigðum og eru veiðitölur vel
fyrir neðan meðaltal síðustu 30 ára
sem er 483 laxar.
Þó svo að teljarinn ofan við
gömlu brú sýni að hátt í 1200 laxar
hafi gengið ána þetta árið má ætla að
talsverður hluti þeirrar tölu sé vænn
sjóbirtingur, en talsvert hefur bor-
ið á stærri birtingum í sumar. Sam-
svarandi tala ff á fýrra ári var rúmlega
2000 fiskar. Það sem vekur þó athygli
er að ákveðin svæði árinnar geyma
mikið af laxi, en tökutregða hefur
verið með ólíkindum.
Það sem helst togar niður veiði-
tölurnar í ár er að minna var um stór-
veiði á göngutíma laxins í júlímánuði.