Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Side 43
DV Veiðimál
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 63
lftlf§i§
''v v%
:
lill
Hítará með 500 laxa
Veiðin í Hítará á Mýrum hefur verið með
besta móti í sumar þrátt fyrir að aflanum
hafi verið ákaflega misskipt milli veiðihópa.
Sem stendur stefnir í að heildarveiðin verði
um 500 laxar sem er vel ofan við meðaltal.
Aðalsvæði árinnar hefur fram til þessa gef-
ið rúmlega 400 laxa og með hliðsjón af því
að veiðin af efri svæðunum er líklegast um
100 laxar er ljóst að áin endar í um 500 laxa
veiði. Mikið vam hefur hamlað veiði í síð-
ustu viku en miklir vatnavextir urðu til þess
að áin litaðist mjög og varð erfið til veiða.
Vonbrigði íVíðidalsá
Rögnvaldur Guðmundsson
er einn'af þessum reynsluboltum
sem fæddust með stöng í hendi.
„Seinustu ár hef ég verið mjög
mikið í Víðidalsá en áin hefur
valdið rosalegum vonbrigðum í
sumar. Hún datt niður um rúm-
lega þúsund laxa á þessu ári," segir
Rögnvaldur og útskýrir að í Víði-
dalsá sé eingöngu veitt á flugu frá
miðjum júlí. Þáð sé að skila mun
minni veiði. „Sérstaklega í Fitjá
sem hefur haldið uppi um 40 pró-
sentum af allri veiði í Víðidalnum.
Það hefur sitt að segja þegar búið
er að banna maðk í henni. Hún er
iilveiðanleg með flugu vegna þess
að hún rennur í gljúfrum og svo-
leiðis."
Rögnvaldur segir að það sem
hafi verir j ákvætt í Víðidalnum
sé að fremur virtist vanta eins árs
fiskinn en ekki tveggja ára fisk. Því
hafi verið að veiðast stórir fiskar.
Og jafnvel þótt laxinn hafi ekki
veiðst mikið í Víðidalsá sé alltaf
nóg af vænni bleikju á laxasvæð-
inu. „Svo er þetta með þennan
dverglax sem er að veiðast. Það
verður að drepa hann það væri al-
veg skelfilegt að leyfa honum að
hrygna," segir hann.
Rögnvaldur fór í Laxá í Dölum
snemma í sumar. „Hún sveik okk-
ur eins og Víðidalurinn. Svo fór ég
aðeins í Hvolsá-Staðarholtsá sem
var lítið stundað svæði í sumar. Ég
varþaríhálfandagogvið settum
í ellefu fiska en lönduðum átta af
þeim."
I huga Rögnvaldar eru ákveðn-
ar skýringar á því að stórlax er nú
ekki jafn algengur og áður var.
„Mig minnir að það hafi ver-
ið um 1992 en þá byrjuðu þeir að
veiða loðnu í flottroll að vori fyrir
Norðurlandi: „Ég bara spyr hvað
eru menn að hirða þar? Þetta eru
nú reyndar bara svona hugmynd-
ir. Svo horfa menn alltaf á okkur
veiðimennina því við erum að
drepa fiskinn. Eg held að við séum
bara eitt sandkom í náttúrunni
varðandi laxveiðar."
Þakklátur vatnadísunum
Stefán Jón Hafstein, ritstjóri flugur.
is, segir veiðisumarið hjá sér hafa verið
ansi gloppótt.
„í laxveiðinni er greinilegt að júní-
veiðar em að verða slakar með því að
stórlaxinn verður æ fáliðaðri, snemm-
gengir fiskar em hreinlega að detta út
úr stofninum. Þessi stóm frægu vor-
veiðidæmi virðast vera að hverfa. Þá
var smálaxinn í ár oft og tíðum mjög
seinn upp og svo var hann ótrúlega
smár," segir Stefán. Að því er Stefán tel-
ur er hluti skýringariimar á meiri smá-
laxi það að fiskurinn fái ekki nóg að éta
í hafi. „En líka sú, að ég er hræddur um
að með seiðasleppingum og vanhugs-
uðum „ræktunaraðgerðum" sé búið að
koma á legg fiskum sem em að eðli og
upppbyggingu miklu smærri og veikari
en náttúrulegir stofnar lögðu til á árum
áður," segir Stefán og spyr: „Hvenær
byijaði það að þykja viðunandi yfir lín-
una að eins árs laxar væm 3-4 pund en
ekki 5-6 pund eða stærri? Þá stakk það
mig enn einu sinni að sjóbleikjan virð-
ist hörfa á mörgum mikilvægum veiði-
stöðum víða um land. Það er ekki algilt,
en greinilegt að þama er eitthvað að."
I
Varðandi sjálfan sig segist Stefán hafa
átt margar góðar stundir í veiðinni í
sumar.
„Ég nýt þess að þurfa ekki á magn-
veiði að halda til þess að skemmta mér
vel, maður lærir alltaf eitthvað nýtt. Ég
fæ mikið út úr því að prófa nýja staði og
nýjar aðferðir í bland við það að heim-
sækja gömlu miðin, kynnast nýjum
veiðifélögum og rækta tengsl við gamla.
Allt þetta gekk upp hjá mér í sumar svo
ég er mjög þakklátur vatnadísunum
fyrir allt sem þær gáfu mér. Og svo á ég
enn eftir að kynnast fjölmörgum stöð-
um,“ segir Stefán.
En hvað bar hæst hjá Stefáni í ár?
„Toppurinn í ár? Ja, skemmtileg
vakt í Elliðaánum, þrælskemmtileg-
ur morgunn á urriðasvæðinu í Mý-
vatnssveit, heimsóknir í bleikjuám-
ar fyrir austan, ný kynni af Fnjóská og
laxamir sem fóm í loftköstum á eftir
flugunni í Þverá... þetta endar hvergi!
En mínusamir em áhyggjur af dular-
fulla bleikjuhvarfinu í Soginu, ég komst
ekki á Amarvatnsheiði og ekki heldur í
Þingvallavam. Ég er strax byrjaður að
hlakka til næsta sumars."
Veiðin slöpp en sumarið gott
„Ég er búinn að veiða töluvert
í sumar. Ætli ég sé ekki búinn að
veiða um 30 laxa og hátt í tvö-
hundruð silunga," segir Kristján
Páll í Veiðiportinu.
Kristján telur laxveiðina í sumar
hafa verið mjög svipaða og í fyrra.
Hjá honum sjálfum hafi silungs-
veiðin á hinn bóginn verið slæm.
„Það skrifast bara á það að ég
hef ekki haft tíma til að fara nógu
mikið. Vorið var kalt en svo fór
þetta í gang. Til dæmis fór Þing-
vallavatn mjög seint af stað vegna
veðurs," segir Kristján sem fór víða
í sumar:
„Ég fór í Miðfjarðará, Ytri-
Rangá, Hólsá og í Laxá. Líka í Þing-
vallavatn og náði þar sjö flottum
urriðum. Veiðin í heild sinni var
frekar slöpp miðað við í fyrra en
jú, jú, þetta er búið að vera mjög
skemmtilegt sumar."
3
20-30 laxa dagar sem Leirvogsá er svo
þekkt fyrir sáust ekki og bestu dagarnir
vom að skila 15-18 laxa veiði sem þó er
mjög gott á aðeins tvær stangir.
Þegar upp er staðið þarf að leita aftur
til ársins 1987 (291 lax) til þess að finna
lægri veiðitölur, en vegur Leirvogsár
hefur legið upp á við nánast samfleytt
frá því ári og var viðbúið að bakslag
kæmi í veiðina.
Bakslagið var hins vegar meira held-
ur en búist var við. Ljóst er að endur-
heimtur seiðasleppinga þetta árið eru
mjög daprar því að óvenju fáir laxar í
aflanum eru örmerktir úr seiðaslepp-
ingum í fyrravor og þar má líklega finna
skýringuna á minni fiskgengd í sumar.
Minni veiði Aðeins veiddust um
300 laxar i Leirvogsú i sumar og
verðw það að teljast mjög lélegt.
Góð skarfaveiði í kringum Reykjavík
Veiðimenn hafa verið að gera
góða skarfaveiði í kringum Reykja-
vík seinustu daga. Veður hefur
hentað vel til veiði og hafa menn
nýtt sér það. Ýmsar aðferðir eru
notaðar í skarfaveiði en helst hafa
menn sem fara út á kajak náð sér í
góða veiði. Blaðamaður Veiðimál-
anna skrapp í smá túr í vikunni og
náði sér í skarf í blíðskaparveðri í
nágrenni Reykjavíkur. Vanur veiði-
maður sem fór með sagðist sjaldan
hafa séð svona mikið af skarf enda
náði sá hinn sami slatta í þess-
ari ferð. Benda má á það að sum-
ir veiðimenn hafa verið að nota
tálfugla til að blekkja skarfinn til að
koma nær skerjum sem veiðimenn
hafast við í.
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verstanir, veitingahús o.fl.
Fyrir versfanin
Tií s^iáití
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
ia sterkingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvaer stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús - hótel - mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
FJzta
Sælgæti fískttV
úrsjónum
Nýtt
bacalao pizza!
Alltaf fyrstír með
nýjungar í saltfiski
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsúhnakka
rækjur
þorskhnakka
steínbitskinnar og bita