Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Page 56

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Page 56
76 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 Sjónvarp DV •* Á dagskrá næstu daga Föstudagur Skjársport - Stuðningsmarmaþátturinn „Liðið mitt" - kl. 7 Hörðustu áhangendur enska boltans á ís- landi í sjónvarpið. Þáttur í umsjón Böðvars Bergssonar þar sem stuðningsmannaklúbbar ensku liðanna á íslandi fá klukkutíma til að láta móðan mása um ágæti síns liðs, kynna klúbbinn, rifja upp eftirminnileg atvik, falleg mörk og hvað- eina áhugavert sem snýr að þeirra liði. Stuðnings- mannaklúbbar Liverpool, Manchester United, Arsenal, Chelsea, Tottenham, Newcastle og íieiri taka þátt og fær hver klúbbur einn þátt á um það bil 6 vikna fresti. . •• ■ - Sjónvarpið - Jón Ólafs. - kl. 19.40 Hjartaknúsarinn Jón Ólafsson er mættur aftur. Góðir gestir mæta í sjón- varpssal og píanóið er aldrei langt undan. Stjórn útsendingar: Jón Egill Bergþórsson. Skjáreinn - Teachers - kl. 20.30 Bandarísk gamansería um skrautíega kennara. Filmore-skólinn í New Jersey hefur fengið sinn skerf af vandamálum, eins og sinnulausum kenn- urum, úreltum reglum og nemendum sem hafa meiri áhuga á sms-skila- boðum en námsbókum. Stöð tvö - Sjálfstætt fólk - kl. 20 JónÁrsæll Þórðarson heldur áfram mann- lífsrannsóknum sínum í mest verðlaunaða sjónvarpsþætti íslandssögunnar. Sjálfstætt fólk hefur einn allra þátta verið alls þrisvar sinnum útnefndur sjónvarpsþáttur ársins á Edduverðlaunahátíð, árið 2003, 2004 og nú síðast árið 2005. Jón Áxsæll Þórðarson held- ur uppteknum hætti og leitar uppi forvitni- legt fólk á öllum aldri, ræðir við það af sinni einskæru hlýju og nærgætni og tekst öðrum fremur að draga upp nýja og áður óþekkta mynd af landskunnum íslendingum. Skjársport - Þrumuskot - kl. 18 Farið er yfir leiki liðinnar helgar og öll mörkin sýnd. Viðtöl við knattspyrnustjóra og leikmenn. Sirkus - Innlit útlit - kl. 21 Innlit útíit hefur vetrargöngu sína. Nadia, Þórunn og Ríó, rokk og raunveruleikinn Sjálfsagt hefði hávaðinn úr sjónvarpstækinu vak- ið þann sem svo ólík- lega vildi tíl að hefði verið sofandi þegar „okkar maður" var að keppa. Þjóðar- stoltið þvílíkt að anti-rokkarinn, konan sem elskar Ríó tríó, Peter og Gordon og Katie Melua, telur sjálfri sér trú um að ís- land eigi enga fram- tíð nema okkar maður sigri í keppninni. Kára- hnjúkar? Verð á matvör- um? Bensínmálið? Hrein- lega gleymast í hita leiksins. Sendir atkvæði í tugatali með SMS-i milli þess sem hún greiðir atkvæði á tölv- unni. Hringir um allan bæ og lætur eins og klukkan sé ekki að ganga tvö að nóttu: „Ertu búinn að kjósa?" Enn einu sinni vorum „við" næstum því búin að vinna. Það fóru að renna á mig tvær grímur á fimmtudagskvöldið þegar Kastljósinu var varpað á keppnina, Rock Star: Supernova. Ég velti í alvöru fyrir mér hvort ég þyrfti að fá stærri skammt af hormónum. Hvernig fór ég að því að heilaþvo mig svona? Vakti ég virkilega nótt eftir nótt við að hlusta á tónlist sem ég þoli ekki? Vakti ég virkilega fram eftir til að vita hvað Tommy Lee hefði að segja? Gáfnafar hans verður hon- um ekki að aldurtila, svo mikið er víst. En þegar hann spurði í Kast- ljósi hvort Island væri ekki nálægt Rússlandi og fulltrúi Sjónvarps andmælti því ekki, þá fyrst hætti mér að standa á sama. Svo kom kreditíistinn. Kredit- listi ársins. Aldrei á ævinni hef ég séð krúttlegri kreditlista: Kastljós. Fram komu: Jóhanna Vilhjálmsdóttir, Dilana, Sturla Böðvarsson, TobyRand... Litía, krúttíega ísland. Með stutt viðtöl við ungt fólk að hrósa Magna okkar og gleymir ekki að setja þau j í kreditlistann frekar en sam- ' göngumálaráðherra. Rokkæsingurinn rann ekki almennilega af mér fyrr en á sunnudaginn þegar utanríkisráð- herra þjóðarinnar mætti í Smára- lind og færði Magna þakkir „fyr- ir hönd íslensku þjóðarinnar". Þakkaði honum fyrir hönd ís- lensku þjóðarinnar fyrir að taka þátt í söngvarakeppni? Finnst ein- hverjum þetta í alvöru eðlilegt? Magni stóð sig vel, var sjálfum sér og fjölskyldu sinni til sóma. Um það eru allir sammála. En er ekk- ert mál brýnna fyrir ráðherra að sinna? Sennilega ekki. Það er allt svo fullkomið á íslandi. Stöð 2 - Freddie (1 af22) - kl. 20.30 Nýir bandarískir framhaldsþættir með gamanleikaranum og hjarta- knúsaranum Freddie Prinze Jr. í aðalhlutverki. í þáttunum leikur hann ungan og kvensaman meistarakokk sem lendir í þeirri vandræðalegu stöðu að þurfa að búa með þremur eldri konum; ömmu sinni og frænk- um - með spaugilegum afleiðingum. Freddie og vinur hans eru kvensamir í meira lagi og ákveða að sannreyna hvort sé betra; að vera í sambandi við ríka stelpu eða fátæka. Þeir eru búnir að prófa þær ríku og nú er komið að þeim sem eru - „jarðbundnari". Það gengur merkilega vel en þótt stelpan sé fín þá kemst Freddie að nokkru miður ánægjulegu um sjálfan sig. Þriðjudagur Mánudagur Sjónvarpið - Rætur guðstrúar (1:3) - kl. 20.50 Breskur heimildarmyndaflokkur í þremur þáttum þar sem fjallað er um sögu mannkyns og tilraunir mannanna til að skilja Guð. í þáttunum er farið um víðan völl og reynt að varpa ljósi á mismunandi menningu og trúar- brögð heimsbyggðarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.