Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Side 58

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Side 58
4T 78 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 Siðast en ekki síst DV Einn bókstafur punktur is „Ég hef verið með ákveðin plön fyrir þessi lén," segir Ivar Pálsson sem er sennilega íslandsmeistari í eign á eins stafs lénum. ívar á eins stafs lénin a.is, b.is, f.is, o.is, g.is, r.is, Ha? v.is, y.is. ívar er nú reyndar ekki bara í tölvumálum því hann á fyrirtækið . Sævörur sem flytur út rækj- l ur. „Það má segja að netmál séu svona hobbí hjá mér," segir hann um hvort það gangi vel saman að flytja úr rækjur og fjárfesta í lénum á netinu. „Ég keypti þessi lén fyrir þremur árum. Það sem menn átta sig ekki á er að svona lén eru verðmæt," segir ívar og bendir á að sum stórfyrirtæki séu með alltoflöng lén. Ef stimplað er inn a.is kemur upp mjög skemmtileg síða þar sem stendur: „Velkomin á heimasíðu ívars Páls- sonar. Þessi sfða er í hægfara smíð- um og því lítið á henni að græða að sinni. Þetta vinnst þó allt með hægð- inni, segir Stebbi sem var að sjá Marseringu Mörgæsanna í Háskóla- bíói." Ofangreint stendur á öllum net- síðunum sem ívar er með. Hann seg- ir þó að það standi til bóta. Fljótlega komi í ljós hver eru framtíðarplön- in sem hann hafi fyrir öll þessi lén. fvar Pálsson Reyndar sé hann alveg til í viðræður varðandi sölu á einhverjum af þess- um skemmtilegu lénum. Söluverðið er samningsatriði. Furðufréttin Kýrnar glaðar og skakkar Furðufréttin að þessu sinni er tekin af fréttavefnum Anan- ova.com og fjallar um rannsókn lögreglunnar í Rúmeníu á fimm bændum þar í landi eftir að upp komast að þeir fóðruðu kýr sín- ar á kannabisplöntum. Rækt- uðu bændumir heilu akrana af kannabis handa kúm sínum enda urðu þær svo „...glaðar og mjólkuðu mun meira en áður". öll fréttin er svona: „Fimm rúmenskir bændur sæta nú rannsókn eftir að lögreglan komst að því að þeir fóðruðu kýr sínar með kannabis. Bændurn- ir, sem eru frá Romanesti í Bot- osani-sýslu, tjáðu lögreglunni að „grasið" hjálpaði kúnum til að gefa af sér meiri mjólk. Bændurnir sem eru á aldrin- um 57 til 82 ára halda því fram að þeir hafl ekki vitað að þeir væru að brjóta lögin með því að rækta kannabis á ökrum sínum. Bónd- inn Ion Astarastoaie segir: „Við ræktuðum þetta af því að kúnum virtist líka vel við það og ham- ingjusamar kýr gefa meiri mjólk afsér." Þarna hlýtur að vera kom- in leið fyrir íslenska kúabændur að forðast mjólkurskort í fram- tíðinni eins og stundum hefur blasað við á vetrum hérlendis undanfarin ár. Halda kúnum skökkum og allir græða. Það er spurning hvort Guðni Ágústsson eigi ekki að setja starfshóp í mál- ið snimmhendis. Lúm-skyr! / Start og Eiríkur Hauksson á Players Spila saman eftir áratugahlé Hljómsveitin Start verður með rokkdansleik haustsins á Players laugardaginn 23. september og kemur Eiríkur Hauksson sérstak- lega til landsins til að syngja með henni. Þetta er í þriðja skipti sem hljómsveitin kemur fram með Eiríki Haukssyni í ár og spiluðu þeir fyrir fullu húsi og dúndrandi stemningu í hin tvö skiptin. Hljómsveitin Start var fyrsta þungarokkhljómsveit íslands. Ann- ar af tveimur söngvurum hljóm- sveitarinnar er nú farinn yfir móðuna miklu en það var Pétur Kristjánsson sem lést í september 2004. „Móttökurnar á tónleikunum í vor voru þannig að það var einhvern veginn eins og við hefðum aldrei hætt," segir Sigurgeir Sigmunds- son gítarleikari. „Það.var ótrúlegt að stíga aftur á stokk í „Startgallan- um" með kjaftfullan kofa og rúm- lega það. Stemningin var ótrúleg og gaman að sjá ný andlit í bland við kunnuglega bolta sem létu sig ekki vanta frekar en fyrri daginn," segir Sigurgeir og hlakkar til að hitta að- dáendur hljómsveitarinnar á ný. „Ég átti ekki von á því að Startar- arnir kæmu saman aftur því Pétur Kristjánsson var aðaldrifkrafturinn í sveitinni en svo var þetta ekk- ert nema ánægjan að syngja með Hljómsveitin Start árið 1981 í Laugar- dalshöll Frá vinstri: Eirlkur Hauksson stuttklipptur við hljómborð, Nikulás Róbertsson hljómborð, Jón Óiafsson bassi, Pétur W. Kristjánsson söngur, Davíð Kartsson trommur og Sigurgeir Sigmundsson á gítar. Aðsókn á rokkdansleiki Start á Players er gífurleg Jón Ólafsson, Sigurgeir Sigmundsson, Eirikur Hauksson, Nikuiás Róbertsson og Davlð Karlsson. þeim aftur," segir' Eiríkur Hauks- son söngvari sem er á íslandi núna til að syngja með hljómsveitinni á Players á laugardagskvöld. Eirík- ur hefur verið búsettur í Noregi í átján ár og syngur þar í hljómsveit sem heitir Live Fire en Eríkur ásamt Ken Hensley úr Uria Heep stofnaði hljómsveitina fyrir tveimur árum. „Við ætlum að taka bland af lög- um og að sjálfsögðu látum við ekki vanta lög eins og Gaggó Vest og Gleðibankann," segir Eiríkur. Hann segir að það sé ekkert útilokað í því að gefa út plötu með Start. „Það gæti allt eins gerst en okkur liggur ekkert á og tökum því bara rólega," segir Eiríkur. Hljómsveitina Start skipa söngv- arinn Eiríkur Hauksson, Sigurgeir Sigmundsson á gítar, Davíð Karls- son á trommur, Jón Ólafsson á bassa og Nikulás Róbertsson á hljóm- borð. Eiríkur verður á landinu til mánaðamóta og mun einnig syngja á Players þarnæstu helgi með hol- lensku hljómsveitinni Mirage sem kemur til íslands á Queen-hátíð á Players og spilar eingöngu Queen- lög. Ætlar Eiríkur að taka nokkur lög með þeim. Gítarleikari Start, Sigurgeir Sig- mundsson, samdi tónlistina fyr- ir heimildarmyndina um Jón Pál sem sýnd er í bíóhúsum landsins og hefur Sigurgeir fengið mikið Jof fyrirþað. Síðasti sprettur í friðarhlaupi v T Gamla myndin að þessu sinni er tekin í Hljómskálagarðinum sumarið 1991 og sýn- ir Halldór Blöndal þáverandi sam- göngu- og land- búnaðarráð- herra með kyndii á lofti fara fyrir fríð- um flokld fólks í friðarJilaupi á vegum Sri Chimnoy-sam- takanna hér á i landi. „Það var fyrir áeggj- an fóstursonar míns, munds MattJiíassonar, að ég tók að mér að hlaupa síðasta sprettinn í þessu friðarhilaupi. Áður hafði hóp- ur þessi hlaupið hringinn í kring- Ey- um landið í þágu friðar," segir Hall- dór Blöndal en hann man vel eftir þessum spretti sínum. Aðspurður hvort ekki hafl verið erfitt að spretta úr spori í jakkafötum, bindi og blankskóm, segir Halldór svo ekki hafa verið. „Þetta var stutt- ur sprettur," segir hann. 'BBF Að sögn Hall- dórs hefur Eymund- 111 fóstursonur hans JP* sinnt málefnum Sri Chimnoy-samtakanna hér- lendis. Samtökin eru heimsþekkt fyrir starf sitt að friðarmálefhum og hafa m.a. unnið náið með Samein- uðu þjóðunum á þeim vettvangi. Gamla myndin Friðarhlaup Halldór Blöndal þáverandi samgöngu- og iandbúnaðarráðherra hleypur með kyndilinn siðasta sprettinn I friðarhlaupi 1991. Á innfelldu myndinni er Halldór I dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.