Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Síða 59
DV Síðast en ekki síst
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 79
Geiri á Goldfinger segir staðinn einn af stærstu súlustöðum Evrópu
Með hundrað stelpur að dansa
„Ég held að mér sé alveg óhætt
að segja að Goldfinger er með stærri
súludansstöðum í Evrópu," segir Ás-
geir Þór Davíðsson eigandi súlu-
staðarins Goldfinger í Kópavogi.
„Yfir árið eru um hundrað stelpur að
dansa hjá mér en margar koma og
fara eins og þær vilja enda staðurinn
minn orðinn rótgróinn og stelpurnar
eru ánægðar," segir Geiri í Goldfinger
eins og hann er oftast kallaður.
„Hjá mér er allt löglegt og stelp-
urnar vita rétt sinn. I búningsklefa
þeirra hangir uppá vegg blað með
símanúmeri Stígamóta meðal ann-
arra staða og hér fer ekkert ólöglegt
fram, hvorki vændi né fíkniefna-
neysla," segir Geiri.
Hann segir að fólk á öllum aldri
sæki staðinn og stundum biðji hjón
um einkadans. „Svo koma hingað
konur sem biðja um einkadans en
ég veit ekki hvort þær eru samkyn-
hneigðar eða ekki, ég spyr fólk ekki
um kynhneigð þess," segir Geiri og
skellihlær.
Hann segir að margir af útlend-
ingunum sem komi til hans séu
þekktír í sínu landi og fari þess vegna
á súlustaði þegar þeir eru erlendis.
Geiri segir að sumir komi
og leggi kortíð sitt inn og
eyði stundum ansi háum
fjárhæðum á staðnum.
„Það hafa líka komið hing-
að mæður með fatlaða
ur meo iauaoa GoWinaer^Hi'n!!^^ með n°l<krurn dönsurum á
«w Z2SSáS3XS^m**m‘***’
sym sina Ul ao bjoOa peim ogkaupafyrirþá'einkadans.‘
einkadans. þeir eru mjög
spenntír þegar þeir koma enda vaða
þeir kannski ekki í kvenfólki vegna
fötlunar sinnar," segir Geiri.
Hann segir að næst á dagskrá
hjá honum sé að vinna dagatal-
ið sem hann gefur alltaf út ár hvert
í desember. „Eg hef þurft að prenta
aukaupplag af dagatalinu því það er
mjög vinsælt og hver sem vill getur
komið hingað og fengið eitt eintak.
Svo sendi ég þau um borð í öll skip
á landinu og það hefur vakið mikla
lukku," segir Geiri og virðist ekki vera
á förum með súlustað sinn í bráð.
Hundar leggja Egil í einelti
Hafa hægðir í heimtröðinni
Sumir halda því fram að rign-
ingin í sumar sé hluti af kosninga-
loforði Vilhjálms borgarstjóra um
hreinsun borgarinnar og ef svo
er, þá er vel að verki staðið. And-
stæðingar hreinnar borgar stunda
skyndiárásir og vega um nætur úr
launsátri hreinar gangstéttir og
stíga, setja upp gildrur og glotta úr
felum yfir því hugarvíli sem þeir ná
að valda.
„Hundur hefur fundið sig í því
að gera þarfir sínar stórar og smáar
við innkeyrslu og heimtröðina hjá
mér. Ég veit ekki til þess að ég hafi
} gert á hlut hunds um mína daga,
en auðvitað má vera að ég hafi yf-
irskyggt líf einhvers hundaeiganda
með góli mínu undangengin rúm
þrjátíu ár - nema hvortveggja sé,"
sagði Egill Ólafsson tónlistarmað-
ur í spjalli við DV.
„Annars er ég ánægður með Vil-
hjálm borgarstjóra. Hann hefur
gert ljómandi átak í hreinsun gatna
og gangstétta í 101. Ég er sannfærð-
ur um að með því að hafa göturn-
ar hreinar og snyrtilegar verði um-
gengni um þær í kjölfarið betri.
Ég trúi því að þegar fjallabúarnir
sem búa utan við 101, koma í mið-
bæinn um helgar, gjarnan kátir,
öskrandi, stífandi úr hnefa bjórinn
I sinn, þá virði þeir snyrtilegar göt-
urnar og leggi af fyrri siði - að spýta
út úr sér tyggjóslummum, míga og
skíta í húsasund og garða og mylja
tómar flöskur á gangstéttum."
„En þetta með hundinn, ég hef
nú gjarnan sópað þessum harðlífis-
skít hundsins af auðmýkt og hugs-
að hlýlega til blessaðrar skepn-
unnar - en þegar guðsvolað dýrið
skilur við sig steinsmuguslepju, þá
kárnar gamanið - þá þarf að spúla
og skrúbba. Engu að síður hugsa ég
fallega til hunds og manns, vit-
andi að sektarkennd og sam-
viskubit hrúgast upp, ja, eins og
skítur í hugum beggja vegna at-
hæfisins.
Oft tek ég eftir því að stig-
ið hefur verið ofan í herleg-
heitin og veit þá jafnframt að
undir skósólum saklauss veg-
faranda er skítaskán og eflaust
fylgir henni tilheyrandi lykt.
Þetta ber viðkomandi með sér,
óafvitandi, inn í híbýli, einka-
bifreið, skrifstofu eða verslun,
jafnvel veitingahús, og afleið-
ingin af slíku hefur engin endi-
mörk í mínum huga.
Ef til vill hendir þetta hund-
eigandann sjálfan og ég verð
að segja að allir þolendur
vegna þessa eiga samúð mína.
Nú á ég ljósmynd af hundin-
um og afturfótum eigandans
sem ég hef hengt upp hjá mér
og þessa dagana bið ég þeim
allrar blessunar og vona að
þeir geri báðir sín stykki á af-
viknari stað.
Þó ég sé á þeirri skoðun að
allir eigi að hafa frelsi til at-
hafna, ekki aðeins þeir sem
eru á sömu skoðun og ég,
heldur ekki síður þeir sem
eru á annarri skoðun, og það
veit ég að er meira en sagt
verður um margan samtíð-
armann minn í okkar samfé-
lagi - en þetta með hundinn
og eiganda hans - þar dreg
ég í auðmýkt mörkin," sagði
Egill.
kormakur@dv.is
Egill Ólafsson Sésf
hérfyrirframan hús
sitt við Grettisgötu en
hundarhafa iagtþað
í vana sinn á ganga
örna sinna við
heimtröðina.
ata
I
I
Nylon byrjar betur en Björk í Bretlandi
Stúlknasveitin Nylon er að gera
góða hluti í Bretlandi þessa dag-
ana. Nylon er nú í tónleikaferð með
strákabandinu McFLY og hófst ferð-
in með risatónleikum í Sheffield.
Áður en Nylon steig á svið var
myndbandið við lag-
ið Closer sýnt á risa-
skjám og sungu all-
ir með. „Það varð
baraalltkolvitlaust.
Það kom meira að
segja mér á óvart
hvað margir sungu
með," segir Einar
Bárðarson, um-
boðsmaður Nyl-
on, en hann var
að sjálfsögðu
staddur á tón-
leikunum.
Það má L
segja að Nyl- I
on-stelpumar séu að ná góðum ár-
angri á Englandi því fyrsta smáskífa
þeirra með laginu Losing a friend
hefur náð lengra en smáskífa Bjark-
ar, Human Behaviour, á sínum tíma.
Björk komst þann 19. júm' 1993 í 36.
sæti á breska smáskífulistanum
en Nylon fór í 29. sætið þann 17.
júlí á þessu ári. Þess má geta að
Nylon gefur út næstu smáskífu,
með laginu Closer, þann 23. okt-
óber og þá verður gaman að fylgj -
ast með hvort lagið nær sama ár-
angri og Losing a fiend.
Til gamans má geta þess að
hvorki Nylon né Björk kom-
ast þó með tærnar þar sem
hún Alda okkar hafði hælana
því Alda náði
á sínum tíma
7. sætí með
laginu Real
Good time.
Björk Þaðverðurþóekki
tekið afBjörk að hún er enn
frægari en Nylon i Bretlandi en
þó gæti það breyst fljótlega.
Alda Alda ber höfuð
og herðar yfír aðra
Islendinga sem hafa
náð inn á breska
smásklfulistann en
hún náði 7. sæti með
laginu Realgood
timeásínumtlma.
Nylon-flokkurinn Hefurslegið Björk við á
breska smáskífulistanum með þvl að ná 29.
sæti með laginu Losing a friend en Björk náði
á slnum tlma 36. sæti með Human Beahvior.
Dómstóll götunnar
Söknuðurað
Varnarliðinu?
„Nei, einfaldlega enginn söknuður."
Arnar Jónsson sjómaður
„Nei, það hefur ekki gertþað mikiö fyrirokkur
Jóhanna Soffía Birgisdóttir heimavinnandi
„Nei, það er ekki nauðsynlegt fyrir okkur.
Nema björgunarsveitin, hún erþað eina sem
ég sakna.“
Jean Michel Paoli kvikmyndagerðar-
maður
„Nei, ekki I mlnu tilfelli."
Sigurjón Sigurðsson öryggisvörður
„Nei, ég held að það hafí ekkert hér að gera
og hafi aldrei haft."
Óskar Sverrisson vélstjóri
„Nei, ég hefekkert þurft á því að halda."
Rannveig Sigurðardóttir verslunarkona
„Nei, það er friður Iþessum heimshluta."
Örn Þórðarson kerfisfræðingur
„Nei, ég hefekkert fundið fyrir þvi hér á landi."
fvar Kristinsson ferðalangur
„Nei, ég verð ekki vör við það."
Guðrún Ketilsdóttir verslunarkona
„Nei, það held ég ekki. Það erágættað vera
laus við herinn."
Guðrún Elíasdóttir húsmóðir
Varnarlið Bandaríkjanna hér á landi
mun senn heyra sögunni til.
Viðmælendur DV voru á einu máli um
að enginn söknuður yrði að því fyrir
utan björgunarsveit liðsins i
einhverjum tilfellum.