Freyr - 15.01.1962, Blaðsíða 30
42
FRE YR
A línuritinu sést, að dauði af völdum votamœði byrjar þegar d 2. ári frá smitun og ncer hámarki á 3. og 4.
ári, en dauða af völdum þurramœði verður hins vegar ekki vart fyrr en á 6. ári frá smitun. A nœstu árum
eykst hann jafnt og þétt, en ncer ekki hámarki fyrr en eftir áratug frá upphafi smitunar. — Fjárdauði af
völdum þurramceði fór yfirleitt hvergi eins geyst og af votamceði, en hélzt við og olli því með tímanum miklu
meira tjóni.
á árunum 1940—1947 þau, að féð drógst
upp og drapst í stórum stíl. Hefðum við
beðið eftir jafnglöggum einkennum á fénu
í Dala- og Mýrahólfi, hefði orðið að fresta
niðurskurði í Lækjarskógi fram til þessa
og ekki mátt hreyfa við fénu í Skörðum
næstu fimm árin.
Ég vona, að mér sé óhætt að fullyrða
það, að bændur á þessum slóðum muni
aldrei framar fá tækifæri til að sjá hin
glöggu einkenni veikinnar frá fyrrnefnd-
um árum. Og hitt fullyrði ég með vissu,
að veikin hagar sér nákvæmlega eins á
byrjunarstigum nú eins og hún gerði
áður — og mun örugglega magnast og
vinna á fénu á sama hátt og áður fyrr,
ef hún fær frið til þess.
Dreifing þurramæði um Mýrahólf
eftir fjárski'ptin 1950.
Við fjárskipti í Dalahólfi á árunum 1955
—56 kom fram mikil þurramæðisýking í
fé á fjölda bæja norðan Hvammsfjarðar-
girðingar. Lungnaskoðun sýndi, að langur
tími var liðinn frá því smit hafði borizt í
féð á sumum bæjum, t. d. í fé, sem komið