Freyr - 15.01.1962, Blaðsíða 18
30
FRE YR
MASSEY-
FERGUSON
dráttarvéía-
námskeið
Laugardaginn 21. okt. s.l. lauk tveggja
vikna dráttarvélanámskeiði hjá Dráttarvél-
um h.f. í Reykjavík.
Dráttarvélar h.f. buðu verkstæðisfor-
mönnum og viðgerðarmönnum víðs vegar
að af landinu til þátttöku, og sóttu tólf
menn úr öllum landsfjórðungum nám-
skeiðið.
Námskeið þetta var sniðið eftir nám-
skeiðum, sem Massey-Ferguson verksmiðj-
urnar halda í eigin skóla í Englandi.
Kennari, sem Dráttarvélar h.f. fengu frá
skólanum í Englandi, var Mr. James Kerr.
Aðstoðarkennari og túlkur var Kristján
Hannesson.
Á þessu námskeiði voru teknar til með-
ferðar þær þrjár gerðir af Ferguson og
Massey-Ferguson diesel-dráttarvélum, sem
mest eru notaðar hérlendis: Massey-Fergu-
son 35, sem er vinsælasta heimilisdráttar-
vélin hérlendis hin síðari ár, Massey-
Ferguson 65, sem er stærsta hjóla-dráttar-
vélin, sem inn er flutt (56,5 hestöfl) og
hefir verið mikið keypt, m. a. af búnaðar-
félögum og ræktunarsamböndum, til notk-
unar við jarðvinnslu með jarðtæturum,
herfum, plógum, ámoksturstækj um og
vökvadrifinni skurðgröfu svo nokkuð sé
nefnt. Þá var og tekin til athugunar eldri
gerð, Ferguson TEF-20 dieselvél. Af þess-
ari gerð hafa s. 1. tvö ár verið flutt inn
nokkur hundruð vélar, notaðar en við-
gerðar, frá Englandi.
Dráttarvélarnar voru teknar sundur
stykki fyrir stykki, af þátttakendum sjálf-
um, sem fengu mjög nákvæmar útskýr-
ingar á svo að segja hverjum smáhlut í
vélunum. Þá voru þátttakendur hvattir til
að spara ekki fyrirspurnir um þau atriði,
sem þeir og gjörðu, og munu þeir hafa
fengið leyst úr ýmsum vafaatriðum, sem
að höfðu borið við viðgerðastörf undanfar-
in ár.
Forstöðumenn Dráttarvéla h.f. hyggjast
í framtíðinni efna til slíkra námskeiða sem
oftast, og helzt einu sinni á ári hverju, til
aö rifja upp og auka við þekkingu viðgerð-
armanna, sem sjá um viðhald þessara véla,
hver á sínu svæði.
Hérlendis hefir hingað til lítið verið gert
að því að sérþjálfa viðgerðarmenn fyrir
ákveðnar tegundir véla. Þetta námskeið
er því væntanlega spor í rétta átt, þar
sem frumskilyrði þess að viðgerðarmaður
geti skilað góðri vinnu á hagkvæmu verði
er, að hann gjörþekki vélina og viti full-
komlega, hvaða hlutverki hver smáhlutur
hefir að gegna.