Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.09.1962, Qupperneq 12

Freyr - 15.09.1962, Qupperneq 12
300 FRE YR í fundarhléi ræSasf menn við utan dyra m. a. við landbún’SarráSherra. (Ljósm.: G.K.). og Stéttarsambandsfulltrúa, sem haldnir voru fyrir skömmu, að Laugum í Þingeyjarsýslu og Borgarnesi. Síðan gerði Kristján grein fyrir fjölmörgum öðrum tillögum um verðlagsmál frá bænda- fundum um land allt. Öllum þessum tilögum var vísað til verðlagsnefndar. Til framleiðslunefndar gengu: Ályktun bændafundar á Blönduósi um að reka bæri nokkur bú til að finna framleiðslukostnað. Ályktun bændafundar á Breiðamýri um breyt- ingar á skattframtalsskýrslum bænda. Ályktun bændafundar Múlasýslna um. að rétta hlut sauðfjárbænda og ályktun kjör- mannafundar á Egilsstöðum um sama efni. Ályktun sama fundar um tolla á landbún- aðarvélum. Til allsherjarnefndar var vísað þessum er- indum: Erindi frá bygginganefnd Bændahallarinn- ar, um að framlengja framlag úr Búnaðarmála- sjóði í 4 ár. Frá fulltrúafundinum í Borgarnesi um af- urðalán vegna landbúnaðarins. Frá kaupfélagsstjórafundi um sama efni. Frá bændafundi á Ökrum í Skagafirði um bún- aðarskólana. Frá Búnaðarsambandi Suður-Þingeyinga um gjald af seldum búvörum, vegna stofnlána- deildar landbúnaðarins. Frá nokkrum öðrum fundum um sama efni. Frá bændafundi í Dalasýslu um lánakjör frum- býlinga. Frá sama fundi um hækkun á afurðalánum vegna landbúnaðarins. Frá bændafundi í Skagafirði um fjárhagsráð- stafanir til þeirra byggðarlaga, sem dregizt hafa aftur úr. Frá aðalfundi Búnaðarsambands Húnvetninga um verðlagningu áburðar.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.