Freyr

Árgangur

Freyr - 15.09.1962, Blaðsíða 50

Freyr - 15.09.1962, Blaðsíða 50
338 FRE YR UM ÞYZKAN LANDBÚNAÐ Á síðastliðnum 10 árum hafa 1.3000.000 v eztur-þýskir landbúnaðarverkamenn horfið úr sveitum að iðnaði í bœjunum. Vestur-Þýzkaland hafði metuppskeru ár- 15 1961. Ráðuneytið í Bonn hefur birt til- kynningu um þetta, en þær staðreyndir byggjast á úrtaki 8000 býla, valdra af til- viljun meðal 1.6 milljóna bújarða í Vestur- Þýskalandi. Uppskera korns hefur aukizt mjög á síðasta áratug eða úr 36 milljónum lesta 1951 í 49 milljónir lesta 1961. Iðnaðurinn hrifsar vinnuaflið. Á sama tíma og eftirtekj an hefur stórlega aukizt hefur vinnuafl mannshanda þorrið mjög í sveitum þar, iðnaðurinn hefur sogað til sín unga fólkið, svo að fólk við sveita- störf var 1.3 milljónum færra í Vestur- Þýzkalandi 1961 en það var 10 árum áður, en þetta nemur því nær þriðjungs fækkun. Til þess að hemla á móti og auka eftirtekj - una hefur verið gripið til fjárfestingarráð- stafana og nema þær á þessum sama áratug 22 milljörðum marka, þar af til vélakaupa 16 milljarðar marka eða 160 milljarðar ísl- enzkra króna. Slíkar feiknaupphæðir hefur landbúnað- urinn sj álfur ekki getað lagt af mörkum en samveldið vestur-þýzka hefur hlaupið þar undir bagga og veitt bæði styrki og hag- kvæm lán. Á árinu 1962 nemur ríkisaðstoðin þannig 2.06 milljörðum marka til jarðrækt- nota mikilvirk nútímatæk', helzt hin full- komnustu sem þekkjast. Hjá okkur eru vél- ar og annar tæknibúnaður lágtollaður — það, sem ekki er framleitt í landinu. Góð lyftistöng fyrir ykkar starfsfúsu og vel hæfu kjötiðnaðarmenn væri að fá tæki og tækni til fjölhæfari vinnslu úr því efni sem hér er til umráða og úrvals, því að fram- undan eru nýjar leiðir að velja um á svið: matvælaiðnaðar og fjölbreyttari geymslu- aðferða. ar og landskiptamála en það er hækkim frá síðasta ári um 510 milljónir marka. Bújörðum fœkkar. Smábýlin eru lögð niður og landskipti endurskoðuð og bújarðir stækkaðar svo að síðan 1949 hefur sveitabýlum fækkað um 400.000. Býli þessi, sem horfin eru, voru flest i/2—10 ha að stærð. Á árinu 1961 fækk- aði bújörðum um 37.000 en samtímis stækka bújarðirnar því að land smábýlanna mynd- ar stærri býli. Landskiptamál þýzkra bænda er mál málanna. Land hvers bónda hefur einatt verið á 20—40 stöðum, þó að samanlögð landstærð hafi numið aðeins nokkrum hekturum, en nú er ofrað stórfé til nýrrar landskipunar til þess að hægt sé og auð- velt að hagnýta vélgengi nútímans, og hætta að nota kýr sem dráttarafl, en um 2 milljónir nautgripa voru notaðir til drátt- ar í Vestur-Þýzkalandi árið 1950. ALNARPSTOFNUNIN. í Svíþjóð hélt hátíðlegt 100 ára afmæli sitt í sumar. Það var árið 1862 að stofnaður var þar almennur tveggja ára skóli til þess að mennta menn á sviði landbúnaðar. í 100 ára sögu stofnunarinnar hefur námið þar verið sérgreint. Síðan 1873 hafa garðyrkju- fræðingar hlotið menntun á Alnarp. Mjólkur- fræðikennslan hófst 1873 og æðri menntun á því sviði og svo á sviði landbúnaðar árið 1903. Þegar nýskipan varð við Búnaðarháskólann á Ultuna árið 1933, varð um leið nýskipan á Alnarp er búvísindanámið hætti þar. Þeim mun meiri áherzla hefur síðan verið lögð á tilraunir, rannsóknir og menntun mjólkur- fræðinga og garðyrkjumanna svo og menntun tæknifræðinga landbúnaðarins (Lantmástara). Og enn verða nokkur þáttaskil, því að frá 1963 verður búnaðarskólinn þar lagður niður en aukin áherzla lögð á tilraunir og rannsókn- ir á þeim sviðum, sem þar eru rækt og eink- um er fyrirhugað að efla að mun tækni- menntunardeildina. j
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.