Freyr - 15.09.1962, Page 17
FREYR
305
Fundur í allsherjarnefnd. Á mynd-
inni má þekkja Guðjón á Tungu-
hálsi, Svein á Reyni, Guðmund á
Hóli, Benedikt á Kirkiubóli og Pál
á Búrfelli. (Ljósm.: G.K.).
Greinargerð.
I ákvæði þessu, frá 1959, felst það, að inn-
heimta þg% af söluvörum bænda til Búnaðar-
byggingarinnar í 4 ár. 1 árslok 1961 féll það
úr gildi. Með tillögu þeirri, sem hér er flutt,
er þess farið á leit, að bráðabirgðaákvæði
þetta verði framlengt til 4 ára í viðbót, þ. e.
tíl ársloka 1965. Ástæðan er sú, að líkur eru
til þess, að lánsfé til byggingarinnar verði
um 70% af öllum kostnaði, húsi, innanstokks-
munum, vélum og áhöldum, og að lánin verði
ekki svo hagstæð, að reksturinn geti staðið
undir afborgunum auk vaxta fyrstu árin. Til
þess þyrfti að vera um stórgróða að ræða. Er
því ítrasta nauðsyn að halda Búnaðarmála-
sjósgjaldinu um nokkur ár, til að mæta af-
borgunum fyrstu árin, eftir að allt húsið verður
tekið í notkun. Tillaga þessi var lögð fyrir
síðasta Búnaðarþing og samþykkt þar með
atkvæðum flestra fulltrúa. Þess er vænzt, að
aðalfundur Stéttarsambandsins líti eins á þetta
mál.
Áður en tillagan kom til atkvæða, urðu
nokkrar umræður. Þorsteinn Sigurðsson, form-
aður byggingarnefndar, gerði nokkra grein
fyrir byggingunni og málefnum hennar. Var
hann bjartsýnn á framtíð hennar.
Einar Halldórsson lét í ljós ánægju með
bygginguna, en Helgi Símonarson kvaðst
ekki ánægður með hana.
Bendedikt Líndal kvaðst ekki greiða tillög-
unni atkvæði.
Guðjón Hallgrímsson kvaðst hafa verið and-
vígur byggingunni, en nú myndi hann fylgja
þessari tillögu.
Sigurjón Sigurðsson lýsti ánægju sinni yfir
þessu stórhýsi bænda á svo veglegum stað. Síð-
an var tillagan borin undir atkvæði og sam-
þykkt með 37:1 atkv.
XI. Tillaga allsherjarnefndar kom nú fram
i nýrri mynd eftir athugun hjá nefndinni. Gerði
Teitur Björnsson grein fyrir henni. Hún var
svo:
Þar sem sölu og framleiðslu landbúnaðarvara
er þannig háttað, að löng bið hlýtur ávallt að
vera frá því að varan er afhent til sölumeðferðar
og þar til endanlegt uppgjör fer fram, skorar
fundurinn á stjórn Stéttarsambandsins, að beita
sér fyrir því við hlutaðeigendur, að tryggt sé,
að veitt verði 70% lán út á verðmæti allra land-
búnaðarvara.
Samþykkt samhljóða,