Freyr - 15.09.1962, Page 20
308
FRE YR
en síðan var hún borin undir atkvæði og
samþykkt samhljóða.
11. Avarp 'cndbýnaSari'á.ðherra.
Ingólfur Jónsson, landbúnaðarráðherra, tók
þá til máls. Ræddi hann fyrst um störf fund-
arins og ályktanir hans. Kvað hann sér líka
sumar þeirra vel, en aðrar myndu missa marks.
Hann vitnaði til þess, að bændur hefðu á mörg-
um fundum lýst ánægju með þau framleiðslu-
ráðslög, sem þeir hafa búið við. En hann
kvaðst reiðubúinn að ræða við stjórn Stéttar-
sambandsins um breytingar á lögunum. Ráð-
herrann talaði síðan um verðlagsgrundvöll
búvara og taldi nauðsynlegt að fá hann leið-
réttan og gerði ráð fyrir, að það mundi vinn-
ast, ef nægileg gögn væru fyrir hendi. Hann
kvað eðlilegt, að óskir kæmu fram um aukin
lán til bænda og tillagan um afurðalánin væri
rétt og vel orðuð. En um Stofnlánadeild land-
búnaðarins hefði verið samþykkt gölluð til-
laga. Hann kvaðst vita, að um gjald af sölu-
vörum bænda til hennar yrði rætt fram yfir
næstu kosningar. Eftir það þætti það gjald
sjálfsagt, hverjir sem færu með völd. Enn
ræddi ráðherrann um fleiri ályktanir fundar-
ins, en síðan vék hann að fólksflutningum úr
sveitum í þéttbýli. Þannig hefði straumurinn
legið hér á landi í 30 ár, og sömu sögu væri
að segja frá öðrum löndum. Þrátt fyrir það,
ætti íslenzkur landbúnaður framtíð fyrir sér, og
að því kæmi, að fólk teldi sér hag í því að búa
í sveit. Það þyrfti að vinna að því, að ungt
fólk gæti sezt þar að. Með lögum um stofn-
lánadeild landbúnaðarins, hefði verið lagður
grundvöllur að því, að veita fé út í sveitirn-
ar. Það væri óhætt að hvetja ungt fólk til að
búa. Það væri betra að búa, en að vera verka-
maður.
Fundarstjóri þakkaði ráðherranum ræðuna
og dvöl lians á fundinum.
12. Önnur ávörp.
Þorsteinn Sigurðsson, formaður Búnaðar-
félags íslands, flutti þá ræðu. Þaklcaði hann
fundinum þann drengilega stuðning, sem hann
hefði veitt byggingu Bændahallarinnar. Hann
kvaðst vera þakklátur Stéttarsambandsfund-
um fyri kynni sín af þeim, en síðan hann
varð formaður Búnaðarfélags Islands hefði
liann setið alla Stéttarsambandsfundi, nema
einn, er hann var erlendis. Þetta hefðu verið
góðir fundir og farið batnandi.
Síðan ræddi Þorsteinn nm gott samstarf
Stéttarsambandsins og B.í. Hann sagði, að
þrjár stofnanir bænda: B.T., Stéttarsambandið
og Framleiðsluráð, ætluðu nú um skeið að búa
saman á einni hæð í Bændahöllinni. Kvaðst
hann vita, að þar yrði gott samstarf og vænti
þeess, að málum bænda yrði þar vel ráðið.
Formaður Stéttarsambandsins, Sverrir
Gíslason, tók síðan til máls. Þakkaði hann
landbúnaðarráðherra komu hans og dvöl á
fundinum, og sömu þakkir flutti hann for-
manni B.I. Þá minntist hann Steingríms Stein-
þórssonar, búnaðarmálastjóra, sem hefði setið
á öllum Stéttarsambandsfundum fram til þessa,
en væri nú fjarverandi. Kvaðst hann marg-
sinnis hafa sótt til hans góð ráð. Oskaði hann,
að fundarstjóri sendi honum skeyti frá fund-
inum. Þá minntist formaður Páls Zóphonías-
sonar, sem enn væri hér á fundi og hefði starf-
að mjög mikið fyrir bændur, sem kennari,
skólastjóri, ráðunautur og búnaðarmálastjóri
og nú síðast, sem eftirlitsmaður með forða-
gæzlu. Fulltrúum þakkaði hann góð störf og
fundarstjórum og riturum fyrir þeirra verk. Þá
þakkaði hann stjórn gistihússins og starfsliði
góðan beina og ágæta aðbúð. Óskaði síðan
fundarmönum góðrar heimferðar.
Fundarstjóri, Bjarni Bjarnason, minntist
fyrirrennara síns, sem fundarstjóra, Jóns Sig-
urðssonar á Reynistað. Vildi hann mega senda
honum kveðjuskeyti frá fundmum.
Þórir Steinþórsson flutti þakkir stjórn Stétt-
arsambandsins, Framleiðsluráði og fulltrúum
bænda í sexmannanefnd, fyrir störf þeirra í
þágu bænda.
Fundarstjóri flutti þakkir framkvæmdastjór-