Freyr - 15.09.1962, Qupperneq 32
’
: iiiiiiivi.’s:'s::i;:':'’ii
'
'
■ ;.
iilpl li i:i:'"
i'-’iiii'ii, :i! 11! ■■
SIGURSTEINN MAGNÚSSON:
LAMBAKJÖT
HEIMA OG ERLENDIS
í efíirfarandi grein gerir Sigursteinn
Magnésson, framkvæmdastjóri SIS í Ed-
inborg, upp þau atriffi, sem uppi hafa
verið viðvíkjandi sölu á íslenzku kjöti er-
lendis, en hann mu'n allra íslendinga.
kunnugastur öllu því, er varðar markaðs-
skilyrði er snerta kindakjöt, enda staðið
í starfi á þeim vettvangi um áratugi. Er
gresnin frannhald umræðína um þett.a
mál, og skýrir til hlítar þær staðreyndir,
er við blasa um markaðsmöguleika á ís-
lénzku lambakjöti, en um málið var áður
birt grein í aprílhefti FREYs 19S2.
Ritstj.
í athugasemd um útflutning lambakjöts,
sem birtist í Morgunblaðinu 2. febrúar s. 1.
og í Frey í apríl, svaraði Helgi Pétursson
framkvæmdastjóri rækilega blaðaskrifum,
sem lesa mátti í desember 1961, en á fundi
í sameinuðu þingi þann 4. apríl fóru fram
umræður um þingsályktunartillögu um það,
að reyndar verði nýjar aðferðir við „pökk-
un og verkun“ á lambakjöti til útflutnings.
í frásögn af þessum umræðum í samein-
uðu þingi er það haft eftir einum þing-
manni, að það ætti að hætta að troða kjöt-
inu, í úreltum umbúðum, i fátækustu kaup-
endurna, að aðrar og betri aðferðir hefði
átt að taka upp fyrir 25 árum og að það sé
óvéfengjanlegt, að bændur hafi skaðast um
milljónir á þessu seinlæti sölumanna
þeirra.
Fleirum en mér mun finnast, að þarna
hafi verið tekið rnyndarlega upp í sig, en
ekki hef ég séð þess getið að fram hafi
komið í umræðunum, hvaða markaði væri
átt við eða hverskonar nýjungar í pökkun
og verkun En ef frammistaðan við mark-
aðsleit fyrir kjötið og sölu á því hefir verið
svona léleg í 25 ár, er engum nær að svara
til saka en mér, þar sem hávaðinn af út-
fluttu frystu lambakjöti síðan 1924 hefir
farið til Bretlands og síðan 1930 hefir það
verið mitt hlutskipti að sjá um sölu á því.
í tilgreindum umræðum í sameinuðu
þingi er svo að sjá, að orð hafi verið haft
á því hvað frammistaðan hafi verið betri
við útflutning fiskafurða, jafnvel hjá S.Í.S.,
enda væri vel fylgzt með nýjungum í pökk-
un og verkun á því sviði. Það er vitanlega
ein af aðalskyldum þeirra, sem hafa með
höndum sölu íslenzkra afurða erlendis, að
fylgjast með öllum nýjungum í frágangi
vara fyrir hina ýmsu markaði, en í sam-
bandi við sölu á frystum fiski annars vegar
og frystu lambakjöti hins vegar og þrátt
fyrir það að vel hefir verið fylgzt með á
öllum sviðum, er þannig ástatt um þessi
mál, að frysta lambakjötið og innýflin, sem
flutt eru út, standa fyllilega á sporði fram-