Freyr

Årgang

Freyr - 15.09.1962, Side 36

Freyr - 15.09.1962, Side 36
Um gjörvallar svaiíir Islands skortir skóga og skjól þeirra. allir mættu una. Hvað snertir þátt bændanna í skógræktinni, þá er hann enn sem komið er í lágmarki. Sennilegt er að hér eigi eftir að verða mikil breyting. Myndirnar, sem Dr. H. P. birtir með viðtal- inu eru mjög fróðlegar og gagnlegar. Þær sýna á mjög athyglisverðan hátt beitaraðferð- ir þeirra Nýsjálendinganna, en athugulum lesanda sýna þær líka fleira. Þær sýna allar skóginn. Nýsjálendingarnir fundu fljótt, að það var ekki nóg að koma með jurtirnar sem þeir vildu rækta. Það þurfti að kunna hinar réttu aðferðir til þess að fá gróðurinn til að þríf- ast. Þannig fundu menn með rannsóknum, að ýms sncfilefni vantaði í jarðveginn, einkum kobalt. Sennilegt er að þetta sé einnig' okkar vandamál. Það er ekki einleikið, að sum- ar grösugustu sveitir landsins skila afurða- rýrasta fénu. I sambandi við skóginn hafa menn orðið að leita uppi þær tegundir, sem dafna hér. En það er ekki allt rnálið. Eftir er að finna hvað gera þarf til þess að hann dafni nógu vel. Vantar snefilefni í jarðveginn til þess að hann þrífist nægilega vel? Þannig hefur borið á óhreysti í skógarfurunni, þó að hún vaxi hér, og aðrar furutegundir vaxi bet- ur. Það er ekki ósennilegt að nauðsynleg efni vanti sums staðar í jarðveginn til þess að jurt- irnar verði nægilega hraustar svo að þær standist baráttuna við óvini sína: veðráttu, sníkjudýr, og einnig til þess að skepnur og menn, sem á þeim lifa, verði heilbrigð og hraust. Þetta verður ekki aðeins sagt urn skóginn, sem er nýr borgari í gróðurríkinu, heldur, því miður, um mikið af öðrum nytja- gróðri, sem við ættum þó að hafa þekkingu á, en höfum ekki. Við þurfum að fara að eins og Nýsjálend- ingarnir: sinna vandamálunum í jarðrækt og eldi dýra og manna. Við þurfum að gera til- raunir og læra af reynslunni. Þessurn málum verður að sinna og það rækilega. Það má ekki láta reka á reiðanum, því það kostar tíma og peninga, sérstaklega er skógurinn tímafrekt fyrirtæki. En í öllum þessum mál- um er mikið ólært, og margt af því er enn ekki að finna í neinum bókum.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.