Freyr - 15.02.1964, Qupperneq 8
62
FREYR
Tafla II
Ormaeggjatala í saur. Samanburður á vænum og rýrum dilkum frá Húsavík og Kópa-
skeri. Okt. 1963.
Vænir dilkar Rýrir dilkar
Tala Meðal- Ormaeggjatala Tala Meðal- Ormaeggj atala
Sýnishorn fall- Meðalt. > 1000 fall- Meðalt. > 1000
þungi í 1 gr- egg í 1 gr. þungi í 1 gr. egg í 1 gr-
Frá 24 bæjum í S-Þing. 60 13,60 kg 697 9 15% 88 10,20 kg 661 12 14%
Frá 15 bæjum í N-Þing. 85 13,39 — 592 11 13% 50 8,97 — 737 7 14%
Samtals: 145 13,48 — 635 20 14% 138 9,75 — 688 19 14%
Af þessum lömbum voru 60 talin góð og
meðalfallþungi þeirra 13,6 kg. Hin 88 lentu
í úrkasti með meðalfallþunga 10,2 kg.
Á Kópaskeri voru tekin sýnishorn úr 135
dilkum frá 15 bæjum í Kelduhverfi í N-
Þingeyjarsýslu. (Björn Þórarinsson frá
Kílakoti í Kelduhverfi tók sýnishorn í slát-
urhúsi á Kópaskeri).
Meðalfallþungi vænu lambanna, samtals
85, var 13,39 kg, en skrokkar rýru lambanna
50 vógu til jafnaðar 8,97 kg.
Við athugun á saursýnishornum úr 148
dilkum úr S-Þing. fundust að meðaltali 675
ormaegg í hverju grammi af saur. í vænni
lömbunum (60) reyndist meðaltal orma-
eggja 697 en í úrkastslömbum (88) var til-
svarandi tala 661. Þúsund ormaegg í
grammi eða þar yfir, fundust alls í 21 lambi
(14%). Af þeim voru 9 úr hópi úrkastslamba
(14)%.
Lömbin úr Kelduhverfi skiptust í 85
sæmilega væna dilka og 50 rýr lömb. Við
ormaeggjatalningu reyndust til jafnaðar
592 ormaegg í grammi í vænu lömbunum
og 11 þeirra eða 13% með ormaeggjatölu
yfir þúsund. Tilsvarandi tölur hjá rýru
dilkunum voru 737 ormaegg í grammi og 7
lömb með háa eggiatölu eða 14%. (Frú Val-
gerður Sigurðardóttir, aðstoðarmaður á
KeJdum, framkvæmdi ormaeggjatalningu).
Heildarniðurstöður af talningu ormaeggja
í saur úr 283 dilkum sýna svipaða útkomu
í báðum þungaflokkum og benda eindregið
gegn því, að ormasýking eigi sök á hinum
mismunandi þrifum lambanna.
Ekki er hægt að fullyrða neitt um það
hve há ormaeggjatalan þurfi að vera í
haustdilkum hér á landi, til að gefa til
kynna skaðlega garnaormasýkingu. Þær at-
huganir, sem mér eru kunnar, benda til
þess, að ormaeggjatala í heilbrigðum haust-
lömbum sé venjulega að meðaltali frá 300
til 1000 í grammi af saur. Þetta mun þó
án efa vera mjög misjafnt í einstökum
landshlutum og fara eftir aðstæðum við
vor- og sumarbeit og vörzlu fjárins að
haustinu.
Lambakregða og fallþungi.
Kregðuskemmdir fundust á misháu stigi
í 10 af 148 lambalungum úr S-Þing. og í 2
af 135 lambalungum úr Kelduhverfi. —
Þessi 12 kregðulömb voru frá 6 bæjum af
þeim 39 bæjum, sem alls voru send sýnis-
horn frá og fyrr er getið. Þegar þess er
gætt, hve óvíða kregða kemur fram í lömb-
um, er augljóst, að sú veiki getur ekki hafa
átt verulegan þátt í lambarýrðinni í Þing-
eyjarsýslum á sl. hausti.
Samanburður á fallþunga kregðulamba
og annarra lamba í sömu fjárhópum stað-
festir þetta einnig (sjá töflu III).
Tafla III
Samanburður á fallþunga kregðulamba og
annarra lamba frá sömu bæjum.
Tala Við lungnarann- Meðalfallþungi
Hreppar bæja sókn fannst lamba kg
JO
« 8 ts S »03 SO 3 M tao ■- tao &0 á SO «> 0J E s C ÍO •a m
6 J2 iá J3
Tjörnes- 1 6 4 9,6 10,5
Reykja- 2 2 14 11,3 9,7
Aðaldals 1 2 4 8,8 14,4
Keldunes- 2 2 18 15,0 10,8
AIls: 6 12 40 10,6 11,0