Freyr - 15.02.1964, Blaðsíða 15
FREYR
69
ÓLAFUR E. STEFÁNSSON:
ÚR SKÝRSLUM NAUTGRIPARÆKTARFÉLAGANNA
Meðalársnyt nythæstu kúnna
Skrá yfir kýr, sem mjólkuðu 22 þús. fe ár-
ið 1962, var birt í 2. tbl. Freys á þessu ári.
Það ár mjólkuðu alls 280 kýr yfir 20 þús.
fe, en á skýrslum voru þá 570 kýr, sem ein-
hvern tímann höfðu náð svo háum ársaf-
urðum og afurðaskýrslur voru til yfir óslit-
ið frá 1. burðardegi. í þeirri skrá, sem hér
er birt, eru meðalársafurðir þeirra kúa í
þessum hópi, sem mjólkað hafa 17 þúsund
fe að meðaltali á ári í skemmst 5 ár. Alls
eru 139 kýr á skránni, og hafa þær að 3 und-
anteknum verið dæmdar á nautgripasýn-
ingum, 130 hlotið I. verðlaun og hinar 6 II.
verðlaun. Margar af þessum kúm eru lands-
kunnar meðal nautgriparæktarmanna, og
hefur áður verið skrifað sérstaklega um
nokkrar þeirra.
Efst á skránni er Bauga 36, Halldórs
Guðmundssonar á Naustum við Akureyri,
en bú hans hefur um langt skeið verið
í flokki með þeim, sem hæsta meðalnyt
hafa haft á árskú. Bauga, sem hlotið hefur
I. verðl. af 1. gráðu, er dóttir Funa N48 og
Krögu 19, úrvalskú, en Funi var sonur
Kols N1 og Eyrarrósar 31 í Sigtúnum. Funi,
sem var vel byggt naut, stóð afar nærri I.
verðlaunum á sínum tíma, en faðir hans var
mjög vel þekkt I. verðlauna naut. Bróðir
hans sammæðra, Loftur 102, hlaut I. verð-
laun í Hrunamannahreppi.
Eins og sést á skránni, hafa nokkrar af-
urðahæstu kýr landsins fallið á árinu. Verð-
ur sumra þeirra getið í grein með skrá yfir
kýr, sem mjólkað hafa yfir 40.000 kg um
ævina og birt verður í 6 tbl. Freys.
FUNI N 48, f. 1. nóvember
1951 að Sigtúnum í Önguls-
staðahreppi. F. Kolur N 1. M.
Eyrarrós 31. Meðal dætra hans
eru Bauga 36, sem hæstar
meðalársafurðir hefur, eins og
sést á skránni, og Rikka 6,
Garði í Öngulsstaðahreppi,
sem var 2. afurðahæsta kýr
Iandsins árið 1962 með 6171
kg mjólkur, en 28016 fe.
Dætur Funa eru sterklega
byggðar og flestar vel hold-
fylltar.