Freyr

Volume

Freyr - 15.02.1964, Page 22

Freyr - 15.02.1964, Page 22
76 FREYR MAURASÝRA OG VOTHEYSHLÖÐUR Sunnlenzkur bóndi leit inn til FREYS í vetur og færði það í tal, að sér virtist votheysturn- inn sinn hafa látið á sjá við það, að í fyrra sumar notaði hann maurasýru til iblöndunar í votheyið. Þessi athugun bóndans er auðvitað hárrétt. Sýrur leysa upp steinsteypu og þar sem sýra er notuð að staðaldri til íblöndunar í hey, rýrir það endingu hlöðunnar ef ekki eru sérstakar ráðstafanir gerðar til varnar. Erlend- is hefur það verið venja að nota sýru og þar eru hlöðurnar sýruvarðar. Hér hefur sjálf- gerjun verið svo að segja algild til þessa, en þrátt fyrir það þarf að verja hlöðurnar gegn áhrifum hinna veiku sýra í heyinu. Þetta þekkja allir. Nú, þegar farið er að nota súr í- blöndunarefni, er nauðsynlegt að sýruverja hlöðurnar svo að ending þeirra verði ekki ó- hæfilega skammvinn. Svonefnt „sílólakk" hef- ur um Norðurlönd verið talið bezt til þessara þarfa enda hefur samanburður á því nær 20 mismunandi efnum sýnt þann árangur. ALUMIN - GRÓÐURHÚ S Frá nágrannalöndum okkar berast þær frétt- ir, að gróðurhús úr alumini leysi senn af hólmi þau, sem gerð eru úr timbri eða stáli. Inn- kaupasamband danskra garðyrkjumanna hefur t. d. nýskeð gert samning við amerískt fyrir- tæki um framleiðslu og sölu aluminhúsa til Danmerkur, en vestan hafs eru aluminhúsin þegar að leysa öll önnur af hólmi, segja þeir, sem bezt þekkja þessa hluti. Það er sótzt eftir alumingrindum í stað hliðstæðra. úr öðru efni af því að viðhald hinna fyrrnefndu er miklu auðveldara og ódýrara. í þessu sambandi er vert að minnast þess, lesandi góður, að alumin er sama heitið og aluminium, en nýyrðanefnd mælist til þess, að heitið ALÚMÍN sé notað í íslenzku, það er auðvelt á tungu og létt í beygingu. NORSKIR BÆNDUR áttu samtals 150 sláttutætara árið 1960 en á síðasta sumri voru 1200 í notkun hjá bændum, svo ör er þróun þess uppskerufyrirkomulags, sem notar þetta nýja tæki. Fyrst og fremst er sláttutætarinn notaður til þess að slá og hirða vothey enda hefur votheysgerð í Noregi aukizt geysilega síðustu árin eða um 100% á 5 árum, segir NORSK LANDBRUG, og votheysmagnið nam 1,2 milljónum lesta á síðasta sumri. ÞJÓÐVERJAR flytja inn smjör, það er bæði gömul og ný staðreynd, og líklega kaupa þeir það sem við höfum framleitt fram yfir innanlandsneyzlu. „BAUERNBLATT“, það er þýzkt bændablað, upplýsir, að á fyrstu 4 mánuðum þessa árs sé smjör keypt frá 22 löndum, þar á meðal 200 lestir frá Rússlandi, sem náttúrlega er aðeins eins og dropi í þeirra hafi. Frá Frakklandi kaupa Þjóðverjar mest eða 5700 lestir á nefndu skeiði. K-40-MÆLIR eða K-40-Computer á frummálinu, er tæki, sem notað er fyrir vestan haf til þess að stað- festa magn kjöts og fitu í svínsskrokkum. Tímaritið Nationai Pig Farmer segir að þetta tæki hafi verið notað til þess að ákveða magn af geislavirku kalí í líkömum dýra, en nú sé búið að fullkomna það til þess að mæla ofan- greind efni í dýraskrokkum. FORSÍÐUMYNDIN er að þessu sinni úr stofu þar sem eiralofn- inn er stofuprýði auk þess að hafa sína kosti fram yfir aðra miðstöðvarofna sem hitagjafi, hvort sem venjulegt lindarvatn eða hitaveituvatn er í miðstöðvarkerfinu. í öðru lagi sýnir myndin hve hlýleg stofan er. Gólfteppið frá Vefaranum á sinn sterka þátt í því. Þægilegir litir og vel valin mynstur eru þar mikilvægt atriði, auk þess hlýleika, sem alltaf fylgir íslenzku ullinni, en teppi Vef- arans eru íslenzkur iðnaður úr íslenzkri ull. Hvert einasta heimili — í sveit og í bæ — kappkostar að sjálfsögðu að skapa fólkinu þægilega tilveru. Þess vegna er eftirspurnin svo mikil eftir: Eiralofnum Ofnasmiðjunnar og Gólfteppum Vefarans. Einholti 10, Reykjavík.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.