Freyr - 01.02.1968, Síða 8
Fuglakynbótabúið Reykjum
hefur að venju daggamla unga og 8 vikna
af þrem hreinum kynjum:
Hvítir ítalir — Brúnir ftalir — Plymout Rock
Ennfremur alls konar tœki til alifuglarœktar
svo sem fóstrur (nýleg gerð) brynningatœki
o. fl. fyrirliggjandi.
Höfum nú sem fyrr forystu í öllu, sem að
alifuglarœkt lýtur.
Allar upplýsingar veittar bréflega og sím-
leiðis.
PantiS tímanlega
JÓN M. GUÐMUNDSSON,
Reykjum, Mosfellssveit — Sími (91)66150
Reykjavík, 18. jan. ’68
er, að vinnan við framleiðsluna er ekki
metin samkv. ákvæðum framleiðsluráðs-
laga og alls ekki verðlögð í samræmi við
kaupgreiðslur fyrir önnur sambærileg
störf.
Þar með er rofið það samkomulag, sem
gert var veturinn 1965—1966 um breyting-
ar á framleiðsluráðslögunum og lögfest var
í maí 1966.
Þetta sýnir, að engu er að treysta í þessu
efni. Af þessu er ljóst, að löggjöfin veitir
stéttinni ekki þá hagsmunavernd, sem til
var ætlazt og bændur hafa treyst. Þess
vegna hljóta bændur að taka til athugunar,
hvort ekki sé ástæða til endurskoðunar og
gjörbreytingar á löggjöfinni, svo hún nái
þeim megin tilgangi sínum að tryggja
bændum viðunandi lífskjör.
Stjórn Stéttarsambands bænda hefur
mótmælt úrskurðinum og ákveðið að kalla
saman aukafund til að kynna fulltrúum
bænda alla sögu málsins og niðurstöður.
Þar mun einnig koma til umræðu út-
flutningur landbúnaðarvara og það við-
horf, sem enn blasir nú við, þrátt fyrir
gengisbreytinguna, að útflutningsbætur
muni á þessu ári alls ekki duga, til að
bændur fái fullt verð fyrir framleiðsluvör-
urnar.
Ég ræði þetta ekki meira að sinni, því
munu gerð fyllri skil á aukafundi þeim,
sem ráðgerður er. Ég þakka stjórn Stétt-
arsambands bænda einhuga samstöðu um
baráttu fyrir réttarbótum stéttinni til
handa. Á sama hátt þakka ég Inga Tryggva-
syni ágætt starf í yfirnefnd. Árangur af
störfum okkar allra er miklum mun minni,
en við höfðum búizt við. Gera má ráð fyrir,
að í hönd fari erfitt ár fyrir bændur lands-
ins. Ég vil þó enda þessa grein með ósk
um, að þeir megi eygja bjartari tíma fram-
undan og að náttúran verði þeim hliðholl
og gjöful á komandi sumri.
64
Gunnar Guðbjartsson.
f «EU