Freyr - 01.02.1968, Síða 11
Verðlacgsgrurtcflvöllur búvöru
GreinargerS oddamanns yfirnefndar samkvœmt lögum nr. 101/1966
Með lögum nr. 55 frá 13. maí 1966 var gerð
breyting á lögum nr. 59 frá 1960 um Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins o. fl. Var breyt-
ing þessi því næst felld inn í áðurnefnd
lög frá 1960 og þau svo gefin út sem lög
nr. 101/1966.
Samkvæmt 1. mgr. 4. gr. nefndra laga
skal söluverð landbúnaðarafurða á innlend-
um markaði miðast við það, að heildartekj-
ur þeirra, er landbúnað stunda, verði í sem
nánustu samræmi við tekjur annarra vinn-
andi stétta. Hefur þessi viðmiðunarregla
verið í lögum allt frá 1947 án nánari á-
kvæða um það, hvernig þessu marki skyldi
náð.
Með 2. mgr. 4. gr. sömu laga var gerð sú
breyting frá eldri ákvæðum laga, að nú
skal í verðlagsgrundvelli tilfæra ársvinnu-
tíma bóndans, skylduliðs hans og hjúa á
búi af þeirri stærð, sem við er miðað hverju
sinni.
í 8. gr. laganna eru svo reglur um það,
að Hagstofa íslands skuli afla fullnægjandi
gagna um framleiðslukostnað landbúnað-
arvara og afurðamagn. Skal Búreikninga-
skrifstofa ríkisins, nú Búreikningastofa
landbúnaðarins, sbr. lög nr. 20/1967, afla
árlega rekstrarreikninga frá bændum, er
sýni raunverulegan framleiðslukostnað
landbúnaðarvara. Þá eru og í nefndri grein
fleiri fyrirmæli, er að öflun gagna um
nefnd atriði lúta.
Ákvæði áðurnefndrar 4. gr. um tilfærðan
ársvinnutíma bóndans er, svo sem sagt var,
nýmæli í lögunum og miða ákvæði 8. gr.
að því, að hægt sé að afla fullnægjandi
upplýsinga um hann með skýrslusöfnun
þeirri og rannsóknum, sem nefnd grein
mælir fyrir um. Rannsókn með sérstöku
tilliti til þessa hófst með vinnumælingum
sumarið 1966, en skýrslusöfnun eftir hin-
um nýju lagaákvæðum um s. 1. áramót, og
gat verðlagsgrundvöllur sá, sem gerður var
haustið 1966, því að sjálfsögðu ekki byggst
á niðurstöðum slíkrar rannsóknar eða at-
hugunum samkvæmt hinum sérstöku fyrir-
mælum 8. gr. Var ársvinnutími bóndans
því eigi tilgreindur í verðlagsgrundvelli og
önnur viðmiðun höfð, þegar laun bónda
voru ákveðin. Er ekki fram komið að um
þetta hafi verið ágreiningur í sexmanna-
nefnd, er í það sinn varð sammála um
verðlagsgrundvöllinn, en niðurstöðutölur
hans hækkuðu þá um 10,8% frá því, sem
áður var, haustið 1965.
Samkvæmt 7. gr. laga nr. 101/1966 skal
verðlagsgrundvöllur gilda um tveggja ára
tímabil, og átti það ákvæði að koma til
framkvæmda frá 1. sept. þ. á.
Þegar til þess kom á s. 1. sumri, að ákveða
verðlagsgrundvöll fyrir tímabilið 1. sept.
1967 til 31. ágúst 1969, náðist eigi samkomu-
lag í sexmannanefnd og skaut hún þá mál-
inu til yfirnefndar samkvæmt 6. gr. lag-
anna, með bréfi dags. 14. okt. s. 1.
Yfirnefndin er svo skipuð samkvæmt 6.
gr. oftnefndra laga nr. 101/1966, að full-
trúar framleiðenda tilnefndu Inga
Tryggvason bónda, Kárhóli, en fulltrúar
neytenda Áma Vilhjálmsson prófessor.
Oddamaður var Hákon GuSmundsson yfir-
borgardómari, er sexmannanefnd varð
sammála um að nefna til þessa starfs.
Samkvæmt áðurnefndu bréfi sexmanna-
67
F R E Y R