Freyr - 01.02.1968, Page 14
Samþykktir aukafundar
Búnaðarsambands
Eyjafjarðar
Búnaðarsamband Eyjafjarðar hélt auka-
fund mánudaginn 15. jan. s.l., til þess að
ræða um málefni sambandsins og ýmis
vandamál bændastéttarinnar.
Fundinn sóttu fulltrúar frá 14 búnaðar-
félögum af 16, sem eru í sambandinu, enn-
fremur stjórn sambandsins, ráðunautar
þess og nokkrir fleiri gestir.
Miklar umræður urðu á fundinum, eink-
um um búfjársjúkdóminn hringskyrfi og
verðlagsmál landbúnaðarins. Var fulltrú-
um skipt í nefndir til að fjalla um þau mál
að loknum umræðum og var svo gefið
fundarhlé meðan nefndirnar störfuðu.
Eftirfarandi samþykktir voru gerðar
á fundinum:
Skuldahœkkun vegna gengisfellingar
„Fundurinn skorar á ríkisstjórn og Alþingi
að verja fé úr ríkissjóði til þess að greiða,
kvæmt upplýsingum búreikninga og
vinnumælinga. Sé miðað við meðal tekjur
viðmiðunarstéttanna 1966 ætti launaliður-
inn að vera ca 22% hærri.
2. Magn kjarnfóðurs er stórlega van-
reiknað í grundvellinum. Sama er að
segja um áburðarmagn og rökstuddum
óskum bænda um leiðréttingu á vélakostn-
aðarliðnum er ekki sinnt.
3. Flutningskostnaðarliðurinn er ekki í
samræmi við afurðamagn búsins og rekstr-
arvöruþörf.
4. Vextir eru vanreiknaðir.
5. Afurðir af sauðfé eru ofreiknaðar og
enn fremur garðávextir.
Ýmsar fleiri veilur tel ég, að finnist í
verðlagsgrundvelli þeim, sem yfirnefnd
skilar nú, þótt ég geri þær ekki að þessu
sinni að nánara umræðuefni.
Ingi Tryggvason.
að verulegu leyti, skuldahækkanir, sem
orðið hafa við gengisfellinguna, á lánum
þeim úr Stofnlánadeild landbúnaðarins,
sem háð voru gengistryggingu“.
Trygging vegna hafíshœttu
„Fundurinn beinir þeim tilmælum til Bún-
aðarþings og Stéttarsambands bænda að
vinna að því við ríkisstjórn og Alþingi að
tryggja þeim, sem verzla með fóðurvörur,
olíur og aðrar helztu lífsnauðsynjar við
þær hafnir, sem hætta er á að hafís geti
lokað, rekstrarlán, sem geri þeim mögu-
legt að hafa a. m. k. fjögurra mánaða
birgðir um hver áramót“.
Hringskyrfi
„Fulltrúafundur Búnaðarsambands Eyja-
fjarðar, haldinn á Akureyri 15. janúar 1968,
samþykkir eftirfarandi um búfjársjúkdóm-
inn hringskyrfi:
1. Fundurinn skorar á hæstvirtan land-
búnaðarráðherra að fyrirskipa nú þeg-
ar ýtarlega athugun á búfjárstofninum
í nágrenni við hin sýktu svæði, svo að
fyrir liggi með vordögum, hversu mik-
illi útbreiðslu veikin hefur náð.
2. Fundurinn skorar á Búnaðarþing 1968,
að taka mál þetta til meðferðar og létta
ekki baráttu sinni fyrir útrýmingu sjúk-
dómsins, fyrr en fullur sigur er unninn.
3. Að gefnu tilefni skorar fundurinn enn-
fremur á yfirdýralækni og Búnaðarþing
1968 að hlutast til um aukið eftirlit með
útlendingum, sem ráða sig til landbún-
aðarstarfa, vegna smithættu á búfjár-
sjúkdómum“.
Tillögum þessum fylgdi eftirfarandi
greinargerð:
„Þar sem búfjársjúkdómurinn „hrings-
kyrfi“ hefur nú verið úrskurðaður á einum
bæ utan varnargirðinga í Hrafnagilshreppi,
er augljóst, að taka verður fastari tökum á
aðgerðum þeim, sem miða eiga að útrým-
ingu hans. Er það álit fundarins, að varnir
gegn útbreiðslunni hafi hrapalega mistek-
70
FJEYR