Freyr

Volume

Freyr - 01.02.1968, Page 25

Freyr - 01.02.1968, Page 25
ungviði og aldurhnigin, öllum er þeim ætlað að þreyja veturinn af upp á eigin spýtur. Fleira kemur í ljós. Skýrslur og önnur gögn forðagæzlumanna koma ekki til réttra aðila til úrvinnslu, fyrr en um áramót. Úr því verður tæpast úr neinu bætt. Harðindavetur og vorið með eru ekki neitt óþekkt fyrirbæri á íslandi, heldur þvert á móti það, sem einatt vænta má, og mönnum ber skylda til að gera fastlega ráð fyrir. Það er sjálfsagt ekki auðvelt að vera forðagæzlumaður, sé það tekið alvar- lega, en jafnframt er það næsta óskiljan- legt að beita þurfi menn þvingunareftirliti og ráðstöfunum til þess að sjá borgið sín- um eigin bústofni. Nú mætti einnig spyrja um það, er sett er á til vetrar, hvort hrossin komi þar yfir- leitt til umræðu, eða hvort bæði eigendur og eftirlitsmenn séu þar á einu máli að Útigangshross Þann 25. maí s.l. vor birtist í Morgunblað- inu grein sú, er hér fer á eftir. Hún er þess eSlis, að FREYR vill gjarnan taka undir með höfundi og birtir greinina því hér, lítið stytta. Mætti skrif þetta og önn- ur álíka verða til þess að breyta viðhorfi liðinna ára til annars og fulikomnara að því er snertir útigangshrossin. — Ritstj. Fyrir utan öll lög og rétt standa útigöngu- hrossin, þúsundum saman, jafnvel tugir þúsunda, ganga enn sem fyrr á berangri, ekkert strá er þeim ætlað, ekkert hús eða kofi til skjóls, ekki svo mikið sem lélegur skjólgarður. Hross eru þar á öllum aldri, F R E 1 R 81

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.