Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1969, Síða 37

Freyr - 01.09.1969, Síða 37
PÉTUR GUNNARSSÚN: Norskar tilraunip með bufé Landbúnaðarháskólinn á Ási í Noregi hef- ur það fyrir venju að boða til fundar hvert annað ár og skýra frá þeim vísindalegu til- raunum og rannsóknum á sviði búfjárrækt- ar og jarðræktar, sem unnið er að á vegum hans á hverjum tíma. Búfjárræktarfundirnir eru yfirleitt haldnir framan af vetri en jarðræktarfund- irnir á útmánuðum. Fundi þessa sækja búnaðarráðunautar og kennarar bændaskólanna í Noregi, tilrauna- stjórar og starfsfólk háskólans. Þá er ætíð nokkrum fagmönnum frá hinum Norður- löndunum boðið að sitja þessa merkilegu fundi og er það vel þegið. Dagana 5. og 6. des. sl. hélt Landbúnaðar- háskólinn einn af þessum búfjárræktar- fundum sínum. Var íslandi boðið að senda menn á fundinn. Fékk ég tækifæri til að sitja hann. Alls voru um 250 manns á fundinum. Þarna var skýrt frá fjölmörgum mjög at- hyglisverðum rannsóknum og tilraunum, meðal annars um fóðurrannsóknir og fóðr- unartilraunir á nautgripum, sauðfé, svín- um, hænsnum og minkum. Einnig var mik- ið rætt um ræktun búfjár, val á lífdýrum og meðferð þeirra. Þar sem búskaparhættir hér líkjast í mörgu þeim norsku er mikill fengur fyrir okkur að fylgjast gjörla með rannsókna- starfsemi Norðmanna á sviði landbúnaðar- ins, læra af þeim og nota þeirra miklu reynslu í þessum efnum, eftir því sem við á. Að þessu sögðu, vil ég skýra hér frá nokkrum tilraunum, sem voru til umræðu á fundinum og snerta fóðurrannsóknir og fóðrunartilraunir á nautgripum og sauðfé. Hér verður aðeins stiklað á helztu atrið- um um þýðingu, tilhögun og niðurstöður tilraunanna. V otheysverkun Fyrst skal skýra frá tilraunum með vot- heysverkun. Tilgangur þeirra var að gera samanburð á votheysverkun með og án íblöndunar- efna sem notuð eru til að bæta verkunina. Fjölmörg íblöndunarefni hafa verið reynd og notuð við votheysgerð á síðari árum víðsvegar í heiminum, en í þessu tilfelli var gerður samanburður á maurasýru og kofasalti, sem er kalsíumsaltið af maura- sýru. Þess má geta, að notkun maurasýru við votheysgerð hefur í mörgum löndum náð mikilli útbreiðslu, meðal annars hef- ur hún verið reynd hér nokkuð og gefist vel. Á Landbúnaðarháskólanum í Noregi hafa votheysrannsóknir og fóðrunartilraunir með vothey, sér í lagi handa mjólkurkúm og sauðfé, verið framkvæmdar í stórum stíl á undanförnum árum undir handleiðslu hins heimskunna fóðurfræðings dr. Knut Breirem. Votheyið var notað til fóðrunartilrauna á mjólkurkúm. Maurasýran var blönduð í hlutfalli 1 lítri af sýru móti 4 lítrum af vatni og blöndunni dreift í grasið við inn- látningu. Eitt árið var sýran notuð óblönd- uð og henni úðað saman við grasið. Notuð voru 3 kg af sterkri sýru í tonn af grasi. Af kofasalti var notað 3 til 3,1 kg í hvert tonn af grasi, Grasið er notað var í votheyið sem verkað var án íblöndunarefna, var þurrkað nokkuð fyrir innlátungu svo þurrefni þess var um og yfir 30%. Votheysgeymslurnar voru fylltar sam- tímis á tveimur dögum og þaktar með plast- yfirbreiðslum. F R E Y R 351

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.