Freyr - 01.09.1969, Qupperneq 40
BRÉF TIL MJÓLK URFRAMLEIÐENDA
UM NOTKUN FÚKALYFJA
Allt frá því að penicillínið uppgötvaðist, í seinni heimsstyrjöldinni, hefir
fjöldi skyldra lyfja komið á markaðinn og gjörbreytt aðstöðu læknavísind-
anna i baráttunni við skæða smitsjúkdóma.
Ekki er vafi á, að notkun fúkalyfja hefir stórbætt heilsufar búpenings og
við íblöndun þeirra í fóður aukið arðsemi landbúnaðarins.
Aukin notkun þeirra hefir, aftur á móti, skapað alvarleg vandamál fyrir
mjólkuriðnaðinn og neytendur mjólkur.
Þegar fúkalyf eru notuð gegn júgurbólgu finnst oft í nokkurn tíma á eftir
mælanlegt magn þeirra í mjólkinni, nægilega mikið til þess að hindra eðli-
legan vöxt mjólkursýrugerla, en það getur leitt til örðugleika við gerð osta,
sýrðrar mjólkur, skyrs og getur einnig spillt eðlilegu bragði smjörs: Mjög
lítið magn af penicillíni í mjólk getur einnig leitt til ofnæmis neytenda
hennar, það lýsir sér sem lost, er jafnvel getur leitt til dauða.
Mikið mjólkurmagn þarf til þess að þynna fúkalyf í mjólk svo mikið, að
fúkalyfsmagnið verki ekki truflandi á vöxt mjólkursýrugerla, enda Ijóst þar,
sem penicillín í styrkleika 0,05 einingar í ml.mjólkur truflar eðlilegan vöxt
þeirra.
Mjólk úr einum spena með fúkalyfi í getur hindrað vöxt mjólkursýru-
gerla í 1000 'lítrum af mjólk, ef slík mjólk væri send í mjólkurbú fyrstu 2
daga eftir aðgerð.
Einu gildir hvort fúkalyf er notað til inngjafar, sett í leg, dælt í hold eða
sett f júgur, lyfið berst með blóðinu í júgrið og þaðan í mjólkina.
Því gildir óhjákvæmilega:
1. Ef fúkalyf er notað til inngjafar, sett í leg eða dælt í hold, þá er öll
mjólk kýrinnar blönduð lyfinu.
2. Ef fúkalyf er sett í júgur, finnst það í miklu magni í mjólk þess júgur-
hluta, og stundum einnig í mælanlegu magni í öðrum júgurhlutum.
A hverja öskju með fúkalyfi til notkunar við júgurbólgu skal álímdur miði
með aðvörun um að blanda ekki mjólk úr júgurhluta, sem er undir aðgerð,
í sölumjólk fyrr en í fyrsta lagi 4 sólarhringum eftir að aðgerð lýkur.
í reglugerð um mjólk og mjólkurvörur stendur í 7. gr. 4. málsgr.: Óheimilt
er að selja eða bjóða til sölu mjólk úr kúm, sem við eru notuð lyf, sem borizt
geta í mjólkina og spillt henni.
Að gefnum tilefnum hefir Mjólkursamsalan neyðzt til þess að hefja eftir-
lit með fúkalyfjum í mjólk og þar, sem þau finnast í innvigtaðri mjólk, verð-
ur sú mjólk tafarlaust endursend.
Mjólkursamsalan vill hér með vekja athygli mjólkurframleiðenda á þess-
um alvarlegu málum og skírskota til ábyrgðar og þegnskapar allra, sem
mjólk selja, að virða sett ákvæði í þessum efnum.
M J ÓLKURSAMS ALAN
.. ....-..—............ j
354
F R E Y R