Freyr - 01.09.1969, Side 45
BÚLKFLUTNINGUR
fóðurs
til bœnda
SÍS PRÓFAR BÚLKBÍL
TIL FÓÐURFLUTNINGA
Þess var getið í síðasta hefti Freys, að
Samband íslenzkra samvinnufélaga hafi
kynnt fréttamönnum nýja leið, sem verið
er að brjóta á þess vegum við dreifingu
fóðurvöru til bænda. Að undanförnu hef-
ur Sambandið flutt til landsins mikið
magn af fullgerðri fóðurblöndu og haft
þau viðskipti við samvinnufélag á Fjóni í
Danmörku, en þar er dreifing fóðurvöru
fullkomnust talin í því landi, enda verið
kerfuð með nýtízku sniði um síðastliðin ár.
Síðan farið var að vöggla fóðurblöndur
hafa opnast möguleikar til að flytja þær í
búlk án þess að teljandi magn heflist af
og verði að ryki, sem fer út í buskann.
Hins vegar er auðsætt, að endurteknar
dælingar þeirrar vöru mylja og losa úr
vögglunum þeim mun meira, sem oftar
er sent í gegnum slöngur og rör.
Sú fóðurblanda, sem gerð er hér og
vöggluð á staðnum, þarf aðeins að sogast
upp í búlkvagninn og dælast úr honum í
síló bændanna, en þegar sækja skal vöggl-
ana til útlandsins þarf fóðrið fleiri ferðir
í gegn um rör, fyrst í skip, þaðan í hús eða
síló, síðan í búlkbílinn og svo heim til
bóndans. Eðlilega má búast við að meira
fari til spillis þegar svo oft þarf að hvotla.
Markmiðið er auðvitað að gera blönd-
urnar hér á landi, en sú viðleitni til nýrra
hátta, sem hér um ræðir, var framkvæmd
þannig, að blandað var úti á Fjóni og sett
þar í skip, fóðurvögglunum dælt hér á
land, síðan í búlkbíl, sem fjón'ska fóður-
vöruverzlunin lánaði hingað til reynslu.
Bíll þessi er útbúinn með tvo geyma og í
hverjum þeirra rúmast 3 lestir af vöggl-
uðu fóðri.
* * *
Á áliðnum degi var komið að Laugardæl-
um, en þangað var stefnt hinum fyrsta
skerfi fóðurs, sem í búlkvagni var fluttur
á íslandi, hinn 3. júlí, anno domini 1969.
Oddvitar heimsóknarinnar voru Hjalti
Pálsson, framkvæmdastjóri innflutnings-
deildar SÍS og Gísli TheócLórsson, aðstoð-
armaður hans, ásamt verkfræðingi og sölu
manni frá Fyns Andels Foderstofforretning
(FAF), en þeir komu hingað til þess að
stjórna athöfnum í þessari sögulegu fyrstu
för slíks flutningavagns frá verzlunarstað
og heim til bænda .
Hér má reyndar skjóta því að, að fóður-
vöruverzlun okkar er aðallega á höndum
fárra aðila og hefur SÍS að undanförnu
annast innflutning á um það bil % þess,
sem inn er flutt. Þessir aðilar hafa hver
fyrir sig stigið framfaraspor á þeirri braut
sem miðar til nútíma athafna þannig:
Fóðurblandan hf. varð fyrst til að flytja
korn til landsins í búlk, það var í maí ’66.
Mjólkurfélag Reykjavíkur varð fyrst til
þess að vöggla fóðurvöru (framleiðsla þess
er vögglar = pellets og ekki kögglar =
briketter) og SÍS er fyrsti aðilinn, sem
flytur fóður í búlkbíl til bænda.
F R E Y R
359