Freyr - 01.09.1969, Qupperneq 48
ÁRNI JÓNSSON, fyrrum bústjóri
á Skógum í Eyjafjallahreppi hefur
frá 1. marz 1969, verið ráðinn til
starfa sem erindreki Stéttarsam-
hands hænda. Árni fæddist 26. 9.
1916 að Grænavatni í Mývatns-
sveit. Árið 1936 lauk hann gagn-
fræðaprófi frá Menntaskóla Ak-
ureyrar, starfaði síðan heima að
búskap unz hann réðist að Skóg-
um árið 1945. Þar stjórnaði hann
búi til 1968 er hann gerðist starfs-
maður hjá harðærisnefnd og vann
þar unz hann tók við hlutverki
erindreka hjá Stéttarsamhandinu.
♦
BJARNI BJÖRNSSON, fæddur 11.
októher 1943 í Reykjavík. Stúdent
frá MR 1963. Útskrifaður frá
Bændaskólanum á Hvanneyri 1964.
Lauk prófi við University of Leeds
1968. Fóðureftirlitsmaður hjá Rann-
sóknarstofnun landbúnaðarins frá
1. janúar 1969.
4
ÖRN ÞORLEIFSSON, ráðunautur
Búnaðarsambands Austurlands, hef-
ur gegnt hlutverki þar síðan 1966,
en ekki hefur tekizt fyrr en nú að
fá mynd af honum til birtingar í
Frey. Starfssvæði hans er aðallega
Suður-Múlasýsla.
STEFÁN AÐALSTEINSSON, bú-
fjárfræðingur, og starfsmaður við
Rannsóknarstofnun landbúnaðarins
á Keldnaholti, hefur lokið doktors-
prófi við Háskólann í Edinborg.
Verkefni til doktorgráðu var um
erfðir á litarhætti sauðfjár, byggt á
rannsóknum á íslenzka sauðfénu.
♦
DIÐRIK JÓHANNSSON, sem um
undanfarin ár hefur veitt forstöðu
sæðingarstöðinni á Hvanneyri, hef-
ur verið ráðinn sem framkvæmda-
stjóri við nautastöð Búnaðarfélags
íslands við Hvanneyri, frá 1. apríl
s. 1. Til undirbúnings starfi þessu
hefur Diðrik sótt námskeið í djúp-
frystingu sæðis og meðferð þess, í
Noregi.
4
BIRNIR BJARNASON heitir
dýralæknirinn í Austur-Skafta-
fellssýslu og ekki BIRGIR eins
og misprentast hefur í síðasta
hefti Freys.
Menn
og
málefni
362
F R E Y R