Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.1971, Qupperneq 4

Freyr - 01.03.1971, Qupperneq 4
ÓLAFUR JÓNSSON: ENDURVINNSLA TtJNA OG GRASFRÆ f nóvember sl. flutti ég útvarpsþátt um endurræktun eða öllu heldur endurvinnslu túna. Erindi þessu ráðstafaði ég síðan til birtingar í Ársriti Rf. Nl. Nú hefur ritstjóri FREYs, Gísli Kristjánsson, óskað eftir því, að ég ritaði um þetta viðfangsefni í FREY og gerði nokkru frekari grein fyrir vissum þáttum þess. Ekki verður þetta þó gert án þess að endurtaka nokkuð af því, sem sagt var í erindinu, en vafalaust hefur það farið framhjá mörgum lesendum FREYs og margir þeirra munu ekki sjá Ársritið. Sú úrvinnsla er þó ekki vandalaus, því jafnan orkar tví- mælis hverju halda skai og hverju sleppa. Má því svo fara, að erindið tapi álíka miklu við úrvinnsluna og það græði á viðaukanum. Þetta mega þeir hafa í huga, sem lesa grein þessa. án þess að kynna sér upphaflega er- indið. Höf. Inngangur og upphaf túnræktar Túnrækt okkar í hart nær þúsund ár var einvörðungu gerð með áburði, án þess að landinu væri bylt eða það brotið. Það er fyrst þegar kemur fram á 18. öld, að örlar á túnasléttum og þó varla svo talið verði fyrr en líða tekur á 19. öldina. Þrátt fyrir þetta tókst okkur, með árlegri áburðar- gjöf í mjög langan tíma, að rækta tún, án þess að slétta þau eða bylta þeim. Nú er þessu öfugt farið. Á undanförnum ár- um höfum við brotið lönd og sléttað af miklu kappi, án þess að rækta þau. Nú er því einn stærsti vandi okkar í ræktun- armálum að rækta þessar nýyrkjur á sem stytzum tíma og auðveldastan hátt. Hér með dreg ég skörp skil milli sléttunar og ræktaðs lands. Aðferð sú, er við lengi notuðum við sléttun túnþýfis, var þaksléttun. Geng ég út frá, að flestum sé hún enn svo kunn, að lýsing á henni sé óþörf. Segja má, að þaksléttan gæfi góða raun við sléttun tún- þýfisins, þar sem jarðvegurinn var orðinn fúinn og sérstakt gróðurfélag hafi orðið til vegna langvinnrar áburðarnotkunar, en þó einkum ef ríflegt magn af búfjárá- burði var borið undir þökurnar. Jafnvel í óræktuðu valllendi utan túns gafst þetta furðu vel. Hins vegar var aðferðin svo seinleg og vinnufrek, að hún gat ekki orð- ið til frambúðar, en þó svo færi, hefðum við átt að geta lært nokkuð af henni og vil ég nefna eftirfarandi: Það var verulegur munur á þeim slétt- um, sem gerðar voru í gamalræktuðum og óræktuðum jarðvegi, þótt aðrar aðstæður væru eins. Það skipi miklu máli að bera 92 F R B Y R

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.