Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.1971, Qupperneq 7

Freyr - 01.03.1971, Qupperneq 7
yrkjum löngu eftir að það er horfið annars staðar, og að sandtún munu verjast betur kali en þau, sem gerð eru í vatnsheldari jarðvegi. Einhver kann að halda, að þetta skipti ekki verulegu máli úr því að jörð er freðin á annað borð, en það er rangt. Gljúpur vel unninn og vel ræstur jarð- vegur verður alls ekki vatnsþéttur þó að hann frjósi, og gæti því endurvinnsla tún- anna öðru hvoru átt drjúgan þátt í því að draga úr ástöðu vatns á yfirborðinu og því tjóni, sem af því hlýzt. Að vísu er við endurvinnslu túnanna ekki um neina djúpplægingu að ræða, en ef til vill mætti auka áhrifin með því að nota rót- fjöður á plógnum, er losaði plógfarið niður í 40 cm dýpi. Þetta væri að minnsta kosti þess vert að reyna það. Því hefur verið fleygt, að ekkert sanni þörfina á endurvinnslu túna. Þetta kann rétt að vera, en er þá nokkuð sem afsannar hana? Ég held varla. Þvert á móti eru rökin fyrir því. að hennar sé þörf, mjög sterk, svo^ sem bent hefur verið á hér að framan. Ég er heldur ekki að hvetja til endurvinnslu annars staðar en þar, sem ræktunin hefur af einhverjum ástæðum misheppnast, gengið úr sér eða skilar ekki viðunandi árangri. Hygg ég, að enginn skortur sé yfirleitt á misheppnuðum ný- yrkjum og túnum, sem úrræktast hafa á einn eða annan hátt, svo auðvelt ætti að vera, nær undantekningarlaust að hagnýta búfjáráburðinn á þennan hátt. Á bessu er þó sá meinbugur, að til þess að slík skipan komist á, verða að vera tiltæk á hverju býli þau tæki, er þarf við endurvinnsluna, og kunnáttu í meðferð þeirra, svo unnt sé að vinna verkin á réttum tíma og á réttan hátt. Án þessa frumskilyrðis þróast hér aldrei nein ræktunarmenning. Grasfræ og grasfræblöndur Lokastig túnyrkjunnar er sáning grasfræs í flögin, og má gera ráð fyrir, að svo verði, þótt það kunni að hafa hvarflað að ein- hverjum á síðustu og verstu tímum að AuSvitað ber aS prófa fræið. hverfa aftur til sjálfgræðslu. Nú hefur fræ- val og fræblöndur til túnræktar verið mjög á dagskrá, allt frá því að tilraunastarfsemi hófst hér á landi fyrir um 70 árum og mætti þá ætla, að við værum dável á vegi staddir í þessum efnum, en þó finnst mér allmikið á skorta, og að ástandið hafi held- ur farið versnandi upp á síðkastið. Til er urmull af tilraunum með gras- tegundir og grasblöndur, og má skipta þeim í tvo flokka: Samanburð á einstökum teg- undum eða stofnum og samanburð á fræ- blöndum. Mikið af þessum tilraunum hafa verið unnar fyrir gíg, sumpart vegna þess, að fræ margra þeirra tegunda, sem í til- raununum voru, var ekki fáanlegt til al- mennra nota, en þó líklega fremur fyrir þá sök, að algerlega hefur verið vanrækt að rannsaka hver hlutdeild hinna einstöku tegunda og stofna hefur orðið í uppsker- unni frá ári til árs, en um það segir heild- aruppskeran ekkert. Heygreiningarnar hefðu þó frætt okkur bezt um endingar tegundanna og grósku, ásamt hlutdeild þeirra í fyrsta og öðrum slætti. Þá vitn- eskju, er við höfum um þetta, byggjum við meira á ágizkun og praktiskri reynslu en á tilraunum og rannsóknum. Árangur þessarra tilrauna og reynslu virðist mér sá, að við vitum nú um nokkrar erlendar grastegundir eða grasstofna, sem við get- F R E Y R 95

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.