Freyr

Volume

Freyr - 01.03.1971, Page 10

Freyr - 01.03.1971, Page 10
Hálmur sem byggingarefni Snemma á árinu 1970 birtu íslenzk blöð frétt um undirbúning að stofnun verk- smiðju hér á landi, þar sem gert væri ráð fyrir að framleiða plötur úr hálmi til bygg- inga. Þess var ekki getið hvar kaupa skyldi hálminn, en ólíklegt að nota skyldi ísl- enzkan hálm þótt til féllist þar sem alþekkt er að hann hefur jafnan 25—30% meira fóðurgildi en erlendur hálmur af sama tagi. Hinu er ekki að leyna, að erlendis hafa verið gerðar plötur úr hálmi og sementi og þær notaðar til bygginga, aðallega til einangrunar. Reynslan af þessari fram- leiðslu hefur ekki verið sérlega hagstæð og er hún því umfangslítil. Hinsvegar er nú mótað í Danmörku viðhorf til þess að reisa tilraunaverksmiðju, er framleiða skal byggingaplötur úr límdum hálmi. Verður hún reist í Stenderup við Kolding. Er á áætlun að verksmiðja þessi byrji með tilraunaplötur svo sem 100.000 m2, úr þeim verða svo reist tilraunahús og ætlað er, að plötur af þessu tagi megi einnig nota til húsgagnaframleiðslu. álíka þolið. Blandan líkist því mest blönd- um þeim, er notaðar voru fyrir 1940. I grasfræblöndu þessa verða að sjálfsögðu valdir þeir fræstofnar, er nú þykja álit- legastir og breytt til eftir því, sem betri bjóðazt. Islenzkt fræ og aðbúnaðurinn Margir halda að öflun grasfræs af íslenzk- um uppruna muni leysa allan vanda sáð- gresisræktunar hér. Nokkuð hefur verið unnið að þessu um alllangt skeið, en þó verður ekki sagt, að fræframleiðsla af inn- lendum grasstofnum hafi nokkurs staðar náð yfir tilraunaskeiðið, enn sem komið er. Af tilraununum verður ekki séð, að íslenzku grasstofnarnir hafi tekið þeim beztu erlendu fram, eða fræblöndur með íslenzku fræi skákað þeim erlendu. Má telja gott hafi þær haldið til jafns við þær erlendu. Hér verður þó að slá þann var- nagla, að of lítið er vitað um endingu stofnanna í tilraununum, sem þó er eitt meginatriði. Einkum eru það stofnar af vallarsveif- grasi og túnvingli, sem reynt hefur verið að ala upp hér. Á þessu eru þó mörg vand- kvæði ekki síst á fræræktinni. Má því svo fara, að enn verði bið á, að fræ verði fá- anlegt af innlendum grasstofnum til al- mennra nota, en takizt það og reynist inn- lendu tegundirnar haldbetri í sáðsléttum hér, en hliðstæðar erlendar, er sjálfsagt að taka þær inn í grasfræblönduna í stað hinna síðarnefndu. Verði reynslan hins vegar neikvæð, hlýtur að vakna sá grunur, að eitthvað annað valdi útdauða sáðgres- isins í nýræktun okkar en ónothæfni gras- tegundanna. Okkur hættir oft og tíðum til að ein- blína á eitthvað eitt sem orsök þess, er aflaga fer, en gætum þess ekki, að oftast eru samverkandi orsakir að verki. Til þess að sáðgresinu, hversu gott sem það er, vegni vel í nýyrkjum okkar, verðum við að búa því þar svo góð lífsskilyrði, sem við höfum vald á. Má vera, að endur- vinnsla túnanna og umbætur þær, sem samtímis er unnt að gera á nýyrkjunum og á notkun búfjáráburðarins, gætu orðið spor í rétta átt. Ályktanir mínar verða því þessar: 1. Endurvinnsla túnanna i sambandi við bœtta notkun búfjáráburðar er aðkall- andi nauðsyn víðast hvar hér á landi. 2. Fræ af hdliðagrasi, finnsku eða öðru jafngóðu, verður að vera einn megin- stofninn í grasfrœblöndum okkar hvort sem við notum eina eða fleiri gerðir. 3. Við verðum jafnan að kappkosta að búa sáðgresinu svo góð skilyrði, sem aðstæð- ur frekast leyfa. 98 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.