Freyr

Volume

Freyr - 01.03.1971, Page 12

Freyr - 01.03.1971, Page 12
Fjósverkin Betri byggingar og aukin tækni við og í peningshúsum hlýtur að skapa og móta skilyrði til auðveldari athafna og meiri af- kasta. Fjármunum er varið til þess að reisa vandaðar byggingar og tækin og tækni- búnaðurinn kosta líka nokkuð. Þessu fylg- ja útgjöld, eðlilegar afskriftir, viðhalds- kostnaður og vextir. Aftur á móti sparast vinna og það léttir á útgjaldapósti búsins, en þó því aðeins að hirðirinn sé ekki at- vinnulaus þær stundir sem vinnan er spör- uð. í reyndinni kemur þetta þannig út, að fjósin eru nú byggð stærri en fyrr, hverjum hirði er ætlað að hirða fleiri kýr en gerðist þegar f jósin voru torfjós, mykj- unni var ekið út í hjólbörum eða borin á handbörum, allar kýr voru handmjalt- aðar og annað eftir því, að ógleymdum myrkraverkunum áður en rafmagnið hélt innreið sína. Það eru ekki nema 25 ár síðan það þótti ósvinna að ætlast til, að einn maður gæti hirt að öllu leyti 12—15 gripi í fjósi. í þeim fjósum, sem reist hafa verið síð- ustu áratugina, þykir víst ekkert meira verk að hirða nú 30—40 gripi en fyrrum 12—15. Auðvitað er eðlilegt að þetta sé eins hér á landi og annarsstaðar, þegar álíka bún- aður er notaður við dagleg störf. Að vísu getur starfið við fóðrun verið talsvert breytilegt eftir því hvaða tegundir fóðurs eru notaðar. Til dæmis er talsvert meiri vinna við að sækja rófur út í bing á teigi, aka þeim heim og brytja síðan til gjafa, eins og gerist í Danmörku, heldur en að nota þurrhey, sem sótt er í hlöðu áfastri við fjósið, eins og við gerum. En sleppum þeim samanburði hér. Hins- vegar er ekki úr vegi að líta á hver vinnu- þörfin er hjó okkur við fjósverk, saman- borið við það er hjá öðrum gerist. Danmörk Dönsku búnaðarfélögin hafa um mörg und- anfarin ár gert athuganir á vinnuþörf og vinnumagni við ýmiss þau störf, sem til- heyra fjósverkum. í samvinnu við bú- reikningaskrifstofuna hafa félögin unnið að þessu. Niðurstöðurnar frá umræddum rannsóknum hafa sýnt, að vinnulaunin eru sívaxandi liður útgjalda við framleiðslu nautgripaafurða, enda þótt framlagt vinnu- magn hafi stöðugt farið minnkandi á hvern grip. I Tidsskrift for landökonomi nr. 6. 157. árgangs, er sagt frá nokkrum niðurstöðum umræddra rannsókna. Er ekki ófróðlegt að frétta hvað þær hafa sýnt. Má þar m. a. segja frá árangri athugana í básafjósum þar sem fjöldi kúa var frá 10—40, eða álíka og hér gerist á mjólkur- sölusvæðum. Þar var um að ræða 275 á- hafnir að vetri en 188 að sumri. Vinnu- þörf, þar sem 30 kýr og ungviði að auki var í fjósi, sýndi sig að vera 387 mínútur = 6V2 stund á dag að vetri en 326 mínútur = 5V2 stund daglega að sumri. Þess ber að geta, að í fjósum Dana er fjöldi ungviðis jafnan meiri en kúatalan. 100 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.