Freyr - 01.03.1971, Side 13
Vinnumagn daglega
BÁSAFJÓS HJARÐFJÓS
Vetur Sumar Vetur Sumar
Fjöldi áhafna 275 188 150 150
Kýr í fjósi, meðaltal 28,2 28,5 41,3 36,6
Mjaltir, mínútur .... 162= 42% 172= 53% 196= 55% 189= 66%
Fóðrun — .... 133= 34% 117= 36% 32= 9% 43= 15%
Hreinsun — .... 68= 18% 35= 11% 51= 15% 10= 4%
Önnur störf — .... 24= 6% 2= 0% 76= 22% 44= 15%
387=100% 326=100% 355=100% 286=100%
Mannsvinna mín./kú .... 13,7 11,4 8,6 7,8
Yfirlitið yfir sundurliðun starfanna í en hún er auðvitað háð skipulagningu
fjósum af nefndri stærð var skráð tafla sýnir, og til eins og ofan- samanburðar bygginga. Á sama hátt var vinnuþörfin mismun-
vinnumagn í hjarðfjósum:
Svo sem tölurnar í töflunni sýna er
vinnuþörfin á hvern grip talsvert minni
í hjarðfjósum en í básafjósum, og svo sem
vænta má er vinnuþörf talsvert minni að
sumri en vetri, en þar er munurinn miklu
minni á hvern grip í hjarðfjósinu en bása-
fjósi.
Af töflunni má sjá, að vetrarstarf fjósa-
mannsins er um 6V2 stund daglega eða 45
stundir á viku ef unnið er alla daga, og
verður ekki sagt, að það sé mikið vinnu-
magn til þess að hirða og hugsa að öllu
leyti um ea 30 kýr og álíka eða svipaðan
fjölda ungviðis. Hirðing 40 kúa í hjarðfjósi
tekur þó skemmri tíma.
Sé taflan skoðuð nánar má sjá, að mjaltir
í hjarðfjósi taka meiri tíma en í básfjósi
en aftur á móti þarf 2Vz sinni lengri tíma
til fóðrunar í básafjósi en hjarðfjósi.
Þegar tekið er tillit til þess fjölda fjósa,
sem vinnumagnsþörf var rannsökuð í, er
það vitað, að þau voru af ýmsum gerðum
og að sjálfsögðu nokkur munur á vinnu-
þörf jafnstórra fjósa eftir gerð þeirra og
gæðum. Ut í þann samanburð skal ekki
farið hér enda var munur þar frá fjósi
til fjóss verulegastur í fóðrunaraðstöðu,
andi frá hjarðfjósi til hjarðfjóss eftir
skipulagi og fyrirkomulagi öllu innan húss
og utan.
Sé reiknuð vinnuþörfin út frá tölum
þeim, sem í töflunni eru, er auðvelt að
komast að raun um hvað umræddar rann-
sóknir hafa sýnt mikla vinnuþörf á kú
um árið. Danir reikna innistöðutíma venju-
lega 200 daga og beitartíma 165 daga ár-
lega. Dæmið verður þá þannig: 200 dagar
x 13,7 mín. -f- 165 dagar x 11,4 mín. þegar
um ræðir básafjós. Þetta gerir samtals 77
stundir á kú árlega.
Meðaltalið í hjarðfjósum verður reikn-
að á sama hátt: 8,6 X 200 + 7,8 X 165
- 50 stundir á kú. Það hefur því kostað
minni vinnu að hirða um kýrnar ca 40 í
hjarðfjósum en tæpleega 30 kýr í bása-
fjósum. Um árangurinn af fjósastörfum í
framleiddu afurðamagni segja þessar tölur
ekkert.
* * *
Noregur
Það er ekki ófróðlegt að líta á fleira í
þessu sambandi. Norðmenn hafa einnig
gert athuganir við athafnir af um-
ræddu tagi. Án þess að fara inn á smá-
muni, er í þessum efnum koma til greina,
F R E Y R
101