Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1971, Blaðsíða 19

Freyr - 01.03.1971, Blaðsíða 19
kýrin rís á fætur Engir básar fyrir fulivaxnar kýr íslenzkar eiga að vera styttri en 145—155 cm nú. Þetta er sem nœst eins og œtlað er handa Jersey kúm hjá öðrum, enda eru þœr 350—400 kg, eða álíka og okkar kýr. Breiddin mun hér oftast 100—110 cm og er það viðunandi ef ekki eru því ramgerðari og sam- felldari milligerðir milli básanna. flg. 2 B. AÐ RÍSA OG AÐ LEGGJAST. Og svo er það með hreyfingarnar, sem skepn- urnar þurfa að fá um hinn allt of langa inni- stöðutíma. Auðvitað er ekki hœgt að hafa bása það víða og rúma á alla grein, að þœr geti leikið sér. Hjarðf jósin hafa þann mikla kost, að þar stirðna skepnurnar ekki vegna langvinnrar stöðu í sömu skorðum. En auðvitað leggjast þœr og rísa á fœtur. Hafa menn annars fulla reiðu á hvernig skepnurnar haga sér þegar svo ber við, en það gera þœr nokkrum sinnum á sólarhring? Jú, sumir vita það, ef til vill flestir en ekki allir — og ekki þeir, sem ófáanlegir voru til að festa klafaböndin á réttan hátt hérna á árunum, sem þau voru innleidd. Eg sendi þá á prent forskriftir um hvernig þau skyldu fest að neðan svo að ekki takmörkuðu þau né hindruðu eðlilegar hreyfingar skepnanna við að rísa upp og leggj- ast. Margir fóru eftir þeim forskriftum en ekki allir. Sumir vildu hafa keðjuna að neðan strengda og afneituðu öðru, hún skyldi ekki vera slök svo að klafinn gœti fœrzt bœði fram og aftur. Þannig hindruðu þessir aðiljar eðlilegar hreyfingar sem klafaböndin annars leyfa, séu þau rétt tengd. Um þetta þarf ekki að rekja langt mál því að ný viðhorf hafa myndast á aldarfjórðungi og ný efni eru komin, sem skapa aðra háttu og ann- an umbúnað handa þeim, sem vilja fylgjazt með tímanum. Hitt breytist ekki. Kýrnar standa upp og kýrnar leggjast rétt á sama hátt og þœr hafa œvinlega gert eða eins og meðfylgjandi myndir sýna og skiptir þá engu í hvaða landi eða af hvaða stofni og þjóðerni þœr eru. Náttúrlegar hreyfingar til þess að leggjast og rísa á fœtur þurfa auðvitað visst rými, sem því miður hefur sjaldan verið tekið tillit til þegar fjósbásar hafa verið afmarkaðir. G. flg. 5 B. fig. 4 B. fig. 6 B. Kýrin rís á fœtur: 1 B. í hvílustöðu 2 B. dregur annan framfót aftur og flytur líkamsþunga fram 3 B. rís upp á afturfótum 4 B. flytur annan framfót fram 5 B. rís á báða framfœtur 6 B. er risin á fœtur. F R E Y R 107

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.