Freyr

Årgang

Freyr - 01.03.1971, Side 20

Freyr - 01.03.1971, Side 20
JÓNAS JÓNSSON: ÁRFERÐI OG RÆKTUN Árferðissveiflur Ég mun í þessari grein leggja áherzlu á þau iatriði, sem ég tel iað bændur verði að tileinka sér sérstaklega vegna hins harða árferðis að undanförnu, því að við verðum að reikna með að það geti varað áfram um óákveðinn tíma. Engir möguleikar eru á að spá fyrir um árferðissveiflur, en þær eru söguleg staðreynd. Eftir því sem bezt er vitað, hafa hlla tíð komið kuidaskeið af og til, en hlýrra verið á milli. Og jafn víst og það er, að nú stendur yfir eitt slíkt kuldaskeið — það hefur staðið síðan um 1960 þó kaldast hafi verið síðustu 5 ár — jafn víst er það, að aftur mun hlýna. Við vitum aðeins ekki hvenær, en vonum, að það verði þegar á þessu nýbyrjaða ári. Nú er það einnig staðreynd, að veðurfarssveifil- urnar, sem hér um ræðir, gera ekki boð á undan sér, þannig að smám saman kólni ár frá ári, eða smám saman hilýni. Kalt ár kemur skyndilega á eftir hlýjum eða öfugt, og veit enginn fyrir hvenær skiptir um. Þó er það lögmál, að viss tregða er gegn breytingum á árferði frá ári til árs. Oftar koma fleiri ködd ár hvert á eftir öðru, og eins með hlýju árin. Á sama hátt fylgjast árstíðirnar oftast að; á eftir kölldum vetr- um, kemur oftar kalt vor og á eftir köldu vori oftast kalt sumar. Þó að þessi tregða gegn breytingum á veðurfari megi teljast lögmál, getur hvenær sem er brugðið út af því og vonum við að sjálfsögðu, að það geri í ár. Svellkal og sumarkuldi Tvennt má telja, að hafi verið erfiðast við árferðið síðast liðið ár, umhleypingarnir síðastlliðinn vetur, er skópu svellalögin svo að víða kól meira og hastarlegar en jafnvel nokkru sinni áður og svo kuildarnir, í sumar, eftir að júní lauk. Ný kalsvæði voru ekki mjög stór á þessu vori; þó bættust við sveitir, sem ekki höfðu haft mikið af kali að segja áður. Og enn kól í mörgum sveitum, sem við þrálátt kal hafa búið áður og það mjög hastarllega. Sum svæði voru nú jafn illa farin og þau, er verst fóru vorið 1968. Þó hygg ég, að nú hafi borið enn meira á kali í úthaga en áður í þessum harðindakafla. Kal var til dæmis víða í úthaga við Eyjafjörð. Á fram- ræstu mýrlendi, þurru og með heilgrasa- gróðri, sá ég til dæmis þannig kal, að allar lautir vom aldauðar en aðeins grænir þúfnakollarnir á milli. Gamlir valllendis- móar og grundir voru einnig víða kalnar. Slíkt kal í úthaga, óábornum og óhreyfð- um, sýnir raunar bezt hve hart hefur reynt á gróðurinn síðastliðinn vetur. Það verður hvorki skrifað á reikning lélegra grasstofna, rangrar áburðarnotkunar eða áburðar yfir- leitt, rangra ræktunaraðferða, meðferðar né annars ræktuninni viðkomandi. Þetta sýnir okkur, að við getum alltaf búizt við áföllum, en aldrei vænzt þess að vinna ial- veg bug á kalinu, þegar svo illa árar sem nú gerist. Þörf aukinnar kalrannsókna Hins vegar væri rangt að draga þá álykt- un af þessu, að ekki séu líkur fyrir því að draga megi verulega úr kalinu. Fuill þörf er á stórefldium kalrannsóknum, bæði grundvallarrannsóknum, á eðli plantna og 108 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.