Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.1971, Qupperneq 24

Freyr - 01.03.1971, Qupperneq 24
Hinar ýmsu tegundir og afbrigði fóðurkáls Jþurfá mismunandi hitamagn og vaxtarskeið til þroskunar. verið með nýtingu þess grænfóðurs, sem standa þarf fram í október, sérlega norð- anlands. Reynslan samhljóða mælingum Þessar athuganir koma heim við reynsl- una frá síðastliðnu sumri, en hún var í stórum dráttum sú, að það grænfóður, sem sáð var ti!l fyrir eða >um miðjan júní, náði vel viðunandi vexti, en væri því sáð telj- andi seinna, brá til beggja vona með sprettuna, einkum í kaldari sveitum lands- ins Að sjálfsögðu eru það fleiri þættir, sem ráða sprettunni en varmamagnið um sprettutímann, t. d. jarðraki og úrkoma, frjósemi jarðvegs og áburðargjöf og gerð jarðvegs, lega landsins og skjólsællni o. fi. Því er ekki hægt að ailhæfa þessar tölur, nema með vissum fyrirvara um þessa þætti. Reynsla s.l. sumars sannar okkur enn bet- ur en áður það, sem við höfum haldið fram að stefna verður að því í ölilum snjóþyngri og harðbýlli sveitum að búa landið, sem mest undir ræktun að haustinu, og sá sem fyrst á vorin, eða strax og landið er orðið nægilega þýtt, jafnvel þó iað enn sé ekki fært um það með öll tæki. Græn- fóðri verður að sá á vorin og bezt sem fyrst. Öðru máili gegnir um sáningu gras- fræs. Það reynist vel um allt norðanvert landið að sá því á haustin, þó ekki fyrr en í lok sept. eða byrjun október. Á Suður- landi getur haustsáning á grasfræi gengið en er áhættusamari. Þar tel ég vænlegra ráð til að tryggja tuppskeru á sama ári og sáð er, að sá nokkru af grænfóðri með grasfræinu. Til greina koma hafrar, rý- gresi eða bygg, og mun byggið j afnvel bezt til þessa fallið. Þess verður að gæta, að nota þó ekki nema V?, till Vi sáðmagn af grænfóðurfræi, ef því er sáð með grasfræi. Önógur undirbúningur Orsakirnar til þess, að menn hafa orðið svona seinir með sáningu, má nær allar rekja til ónógs undirbúnings, sem stafar m. a. af því, iað grænfóðurræktunin er ekki orðin fastur liður í búskapnum. Ég nefni nokkur dæmi: Það hefur hent hvað eftir annað undan- farin vor, að grænfóðurútsæði, einkum hafrar, hefur gengið til þurrðar hjá fræ- verzlunum, þegar nokkuð er liðið á þann tíma sem eðililegt er að sáð sé. Ekki er rétt að skrifa þetta á reikning þeirra, sem verzla með fræið, nema að litlu leyti, þeir hafa nær árllega aukið pantanir sínar á grænfóðurfræi og hvatt menn mjög til að 112 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.