Freyr - 01.09.1971, Page 8
Rikki N189.
Umsögn:
Hrafn N187 hlaut II. verðl. á sýningu 1968.
Dætur hans voru í afkvæmarannsókn á
Lundi, er lauk haustið 1970, og hlaut hann
þá I. verðl. viðurkenningu.
Lýsing og reynsla á dætrum:
Á Lundi luku 14 dætur Hrafns N187 1.
mjólkurskeiði í afkvæmarannsókn. Dætur
Hrafns eru nær allar svartar eða kolóttar,
flestar alkollóttar og engin hyrnd. Þær
hlutu afar háa einkunn fyrir byggingu, og
virðast að sumu leyti svipa til föðursystra
sinna, dætra Surts N122. Flestar hafa bein-
an hrygg, mikið bolrými og breiðar malir,
eilítið hallandi. Fótstaða er bein, júgur vel
upp borin og mjöltun frábær. Þetta er
ræktarlegur, óvenju glæsilegur og sam-
stæður hópur. Mjólkuðu þær á 304 dögum
að meðaltali 3420 kg með 4,15% meðalfitu,
þ. e. 14193 fe. Að undanteknum dætrum
Rikka N189, sem voru í afkvæmarannsókn
á Lundi sama ár, er þetta afurðahæsti
kvígnahópurinn, sem enn hefur verið á
Lundi. Eru afurðir dætra þessara tveggja
nauta langt fyrir ofan það, sem áður er
vitað um 1. kálfs kvígur hér á landi.
RIKKI N189,
f. 9. maí 1965 hjá Hallgrími Aðalsteinssyni,
Garði í Öngulsstaðahreppi.
Lýsing:
svartskjöldóttur; kollóttur; hryggur lítið
eitt ójafn; litlar útlögur; bolur fremur
grunnur; malir breiðar, en lítið eitt hall-
andi; hávaxinn, grannur og langur gripur
með veika fótstöðu.
Ættartala:
FAÐIR: Þeli N86, SNE, sami og faðir Andra V102
og Þjálfa N185, sjá 1. skýrslu bls. 130, I. verðl.
MÓÐIR: Rikka 6, f. 7. jan. 1958 að Rifkelsstöðum,
Ongulsstaðahreppi.
Mf. Funi N48, SNE.
Mm. Bletta 39, Jónasar Halldórssonar, Rifkelsstöð-
um.
Mff. Kolur Nl, SNE, I. verðl.
Mfm. Eyrarrós 31, Sigtúnum. Öngulsstaðahreppi.
Mmf. Loftfari N6, SNE.
Mmm. Bletta 27, Þórustöðum, Öngulsstaðahreppi.
Rikka 6 hlaut háan dóm fyrir byggingu á
nautgripasýningu. í samfelld 6 heil ár
mjólkaði hún að meðaltali á ári 5185 kg
með 4,15% mjólkurfitu, þ. e. 21518 fe. Er
1. kálfs nyt innifalin í þessu meðaltali
nema fyrstu 3 vikur þess. Árið 1962 var
hún önnur afurðahæsta kýr landsins og
árið 1964 hin þriðja í röðinni.
Umsögn:
Rikki N189 hlaut II. verðl. á sýningu 1968,
en I. verðl. haustið 1970, er afkvæmarann-
356
F R E Y R