Freyr - 01.09.1971, Qupperneq 10
Geisli N197.
Fmf.=Fff.
Fmm. Ása 4, Kyljuholti.
MÓÐIR: Eygló 6, f. 1954.
Mf. Rauður N46, Nd. Bf. Reykdæia, I. verðl.
Mm. Síða.
Mff. Loftfari N6, SNE.
Mfm. Ýma 9, Kristnesi, Hrafnagilshreppi.
Mmf.
Mmm.
Eygló 6 var aðeins 4 samfelld ár á skýrslu,
þar sem skýrsluhald var ekki stöðugt á
Hömrum þau ár, sem hún lifði. Á þessum
árum, 1962—65, mjólkaði hún að meðaltali
á ári 4804 kg með 3,94% fitu eða 18928 fe.
Umsögn um Geisla og dætur hans:
Geisli hlaut II. verðl. á nautgripasýningu
1968, og eru dætur hans nú í afkvæma-
rannsókn á Lundi. Að honum standa ýms-
ar ættir, sem þó koma að nokkru saman,
ef lengra er rakið. Hrafn A6, sem reyndist
afburða vel á Mýrum í A.-Skaftafellssýslu,
var t. d. af Kluftastofni í móðurætt og
sama stofni og eyfirzkum í föðurætt.
í yfirstandandi afkvæmarannsókn á
Lundi höfðu dætur Geisla, 16 að tölu,
mjólkað að meðaltali 1561 kg fyrstu 100
daga 1. mjólkurskeiðs, sem er mjög glæsi-
legt. Verður fróðlegt að vita, hvort þessi
hópur nær eða fer fram úr dætrum þeirra
Hrafns og Rikka í afköstum, en hann hefur
þegar sýnt mikla mjólkurgetu, og komust
kvígurnar í 17,7 kg hæsta dagsnyt að jafn-
aði.
Þessi hálfsystrahópur var skoðaður í
apríllok (J.E.). Þær hafa sterka yfirlínu,
fremur mikið bolrými, en malir þaklaga á
flestum. Fótstaða er góð. Þessar kvígur
hafa stór, en nokkrar eilítið síð, klofin júg-
ur. Spenar eru vel gerðir, en ívið of langir
á sumum. Þetta er samstæður hópur
systra, góðar í mjöltun, og sérlega skap-
góðar.
Yngri naut, sem valin hafa verið til
afkvæmaprófana á Lundi
Þá voru haustið 1970 flutt á Nautastöðina
þau naut, sem afkvæmaprófuð verða næstu
tvö ár á Lundi, tvö árlega. Eru þau þessi
eftir aldursröð: Straumur N199 og Heimir
N201, en 20 kvígur undan hvoru þeirra eru
nú á 2. ári í uppeldi á Lundi, og Hnokki
N205 og Natan N207, sem jafnmargar kvíg-
ur eru undan í uppeldi á 1. ári. Verður
þessara 4 nauta nú getið nánar.
STRAUMUR N199,
f. 26. jan. 1967 á Skjaldarvíkurbúinu í
Glæsibæjarhreppi í Eyjafjarðarsýslu.
Lýsing:
svartur; kollóttur; breiður hryggur; sæmi-
legar útlögur, en boldýpt nú tæplega í
meðallagi; malir jafnar, breiðar, eilítið
hallandi; bein fótstaða; stórvaxinn og sér-
lega langur gripur. II. verðl 1968.
Ættartala:
FAÐIR: Þeli N86, SNE, sami og faðir Andra V102,
Þjáifa N185 og Rikka N189, sjá 1. skýrslu bls. 130,
I. verðl.
MÓÐIR: Sjöfn 82, f. að Skjaldarvík 10. sept. 1956.
Mf. Fylkir N88, SNE, sami og faðir Sokka N146
og' Munks N149, sjá 1. skýrslu hls. 126, I. verðl.
Mm. Dimma 53.
Mmf. Viga-Skúta N4.
Mmm. Kríma 26.
Sjöfn 82 var á skýrslum í 8 heil, samfelld
ár. Hún mjólkaði að meðaltali á þeim tíma
358
F R E Y R