Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1971, Síða 16

Freyr - 01.09.1971, Síða 16
P. A. INGVASON: GULLNAR STARIR ISLANDS Höfundur greinar þessarar, P. A. Ingvason, er Húnvetningur að ætt og uppruna. Hann nam búvísindi vestan hafs og starfaði þar um áraraðir á sviði ræktunar, einkum að engjarækt og áveitumálum. Grein þessi birtist í tímariti vestan hafs fyrir nokkru og hefur verið snarað á ísl- ensku til birtingar í Frey, þar eð telja verð- ur hana þess maklega að koma fyrir sjónir lesenda ritsins. Páll A. Ingvason er nú hættur störfum og dvelzt sem vistmaður á Kristnesi í Eyjafirði. Ritstj. Hín frábæra fóðurjurt, sem er þekkt undir nafninu gulstör (Carex Lyngbyei), vex víða villt sem ríkjandi eða eina jurtin á flæðiengjum, árbökkum, óshólmum og engjum, með ströndum, þar sem gætir sjávarfalla eða flóða í jökulám. Það gerist oft að vetrarlagi, að sjávarföllin mynda sandgarða við árósa og loka ræsiskurðum engjanna við strendur. Þetta orsakar mikil flóð á vorin þar til garðurinn brestur eða er opnaður af mannavöldum. Lík hrísgrjónajurtínni Ræktun þessarar afburða fóðurjurtar er ekki ólík ræktun hrísgrjónajurtarinnar við árstíðabundin flóð. Þá er árvatni veitt yfir akurinn á vorin og látið safnast í 25—35 cm djúpar uppistöður eða haft stöðugt rennsli, sé vatnsmagn nægilegt. Við óshólma jökulánna, þar sem hið salta sjávarflóð blandast leirmenguðu ár- vatninu og þar sem þetta vatn er notað til áveitu, verður leirlag eftir á engjunum og sjávarsaltið kemur gróðrinum til góðs sem áburður. Störin hefur jarðlægan stöngul og myndar þéttan, teygjanlegan og þykkan svörð. Gróskan er mikil, störin er bein- 364 F R E Y R

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.