Freyr - 01.09.1971, Page 22
liti til vinnu í fjósinu, miðað við tvístæðu-
fjós eins og þau voru langflest byggð á
umræddu skeiði og síðan.
* * *
Fyrir 25 árum voru kýrnar yfirleitt um
350—375 kg að þyngd að meðaltali. Þá sá
maður flest ungviði í högum hálf horuð
og úfin, vegna laklegra beitarskilyrða og
lélegs uppeldis og vöxturinn fór fram að-
allega í innistöðu, en fjöldi gripa náði mjög
seint eða aldrei eðlilegum og fullum
þroska. Á það benti eg ýmsum, einkum
þeim, er þá voru að byggja, að þetta yrði
ekki svo um alla framtíð og gera skyldi
ráð fyrir, að með auknum kynbótum og
bættri meðferð mundu kýrnar stækka um
komandi ár og þyngjast svo, að þeim hent-
uðu illa 135—145 cm básar eftir aldarfjórð-
ung, en fjósin yrðu þá til þótt nýjar kýr
stæðu á básum að þeim tíma komnum.
Aldarfjórðungurinn er liðinn og vissulega
hafa kýrnar bæði stækkað og þyngst. Það
er árangurinn af markvissu kynbótastarfi
og mjög bættri meðferð og fóðrun í upp-
eldi skepnanna. Nú mun meðalþyngd
kúnna nokkuð yfir 400 kg og margar
þeirra munu vega yfir 450 kg. Stærðin er
önnur og þá hæfa þeim illa stuttu bás-
arnir, sem auðvitað hafa ekki lengst til
samræmis við eðlilegar þarfir.
í samræmi við þyngdina hefur bollengd
kúnna að sjálfsögðu aukizt og voru bás-
arnir of stuttir fyrir 25 árum þá eru þeir
allt of stuttir nú. Eg legg til að nú verði
gerð gangskör að því að mæla lengd svo
sem 2—3 þúsund kúa og staðfesta þannig
hve langir básarnir þurfa að vera nú og
gera ráð fyrir að kýrnar lengist enn um
sinn, svo sem einn cm á hverjum 5 árum.
Jafnvel þótt við ekki skiptum um naut-
gripastofn, sem litlar líkur eru til eða eng-
ar, þá gerir bætt uppeldi sitt til að efla
vöxtinn, rétt eins og gerzt hefur í mann-
heimum síðustu árin.
Miðað við tvístæðufjós og stuttbása,
þurfa þau að vera 10 m breið utanmál,
veggir með einangrun dragast frá 2 x25
cm og þá er innanmál fjóssins 9,50 m. Skip-
an þess milli hliðarveggja yrði þá þessi:
Gangar með veggjum 2 X 160 cm = 320 cm
Básaraðir, lengdir 2 X 150 cm = 300 —
Flórar eða ristar 2 X 90 cm = 180 —
Stétt í miðju 150cm = 150 —
Samtals 9,50 m
Stærðir þær, er hér um ræðir, mætti ef
til vill hreyfa þannig, að gangur við útvegg,
ásamt jötu, sé 170 cm á breidd og stéttin
í miðju fjósi þá aðeins 130 cm, en þangað
til annað verður sannað ætla eg, að meðal-
lengd bása, svo þeir séu við hæfi meðal-
kýrinnar nú, þurfi að vera 150 cm að lengd,
þá miðað við ár 1970—1990.
Verði farið inn á að gera langbása, sem
ekki er líklegt nema ef hjarðfjós með legu-
básum eru byggð, þá þurfa þeir að vera
40—50 cm lengri en stuttbásarnir, miðað
við að lengdin frá bóghnútu á snoppu sé
sem næst þessu máli.
* * *
Þegar á allt er litið er það sitthvað í
sambandi við básana og búnað þeirra, sem
gera þarf gangskör að og prófa, því að
jafnframt og gerðar eru eðlilegar og vax-
andi kröfur til aukinna afurða eftir skepn-
urnar, — eins og vera ber til þess að nýta
fengna afurðahæfni með auknum kynbót-
um — þá þarf að stuðla að því á allan hátt,
að líðan skepnanna sé sem bezt, og þar til
telzt góð og ágæt húsvist.. Básinn, legurúm
kúnna og vistarvera 4/5 hluta ársins, er
ákaflega mikilvægt atriði í því sambandi.
Og svo má ekki gleyma að taka tillit til
eðlilegs vaxtar og vaxtarhlutfalla, eins og
gerzt hefur á undanförnum árum og til
þessa dags. Það er kominn tími til að
breyta um háttu í þessum efnum. Og svo
hitt. Gott rými til allrar innistöðu í fjósi
er höfuðnauðsyn. Það er betra að tak-
marka lofthæðina en flatarmálið. G.
370
F R E Y R