Freyr - 01.09.1971, Qupperneq 23
Hraðþurrkað gras
ogj grænfóður
Hér á landi eru starfandi tvær verksmiðjur,
sem framleiða köggla og vöggla úr grasi og
grænfóðri og ein, er framleiðir mjöl.
Hraðþurrkunarmái hafa verið á dagskrá
og áhugi fyrir að stofna fleiri verksmiðjur
af svipuðu tagi. Ekki er ólíklegt að hrað-
þurrkuð vara sé hentugasta aðferðin og bezta
heyfóðrið þegar efna skal til heyforðabúra,
er gripið skal til i harðærum.
í öðrum löndum eru mál þessi einnig á
dagskrá og umfangsmiklar tilraunir og rann-
sóknir þar gerðar, með ærnum kostnaði, til
þess að kanna hagkvæmni og hlutgengi í
notkun umræddrar framleiðslu. Fer útdrátt-
ur úr nokkrum skýrslum um þau efni hér
á eftir.
Tilraunir með hraðþurrkað gras
Árið 1940 kom út í Svíþjóð bók um
KONSTSTROKKNING AV GRÖNT FO-
DER eftir Osvald — Laudon och Axelson.
Fjallaði hún um yfirgripsmiklar athugan-
ir viðvíkjandi hraðþurrkun og samanburð
á ýmsum þurrkunarkerfum, sem þá voru
í notkun, aðallega í Englandi.
Síðan hafa Svíar lítt sinnt þessum mál-
um og útbreiðsla hraðþurrkunar er þar
svo til engin.
Svíar eru auðug þjóð og verja miklu fé
til rannsókna og tilrauna. Nú er m. a. verið
að reisa hraðþurrkunarstöð og kerfa allan
búnað viðvíkjandi rekstri hennar til rann-
sóknar og tilrauna á sviði hraðþurrkunar
og nýtingu hraðþurrkaðrar vöru, fyrst og
fremst til fóðurs.
Umræddri stöð, sem byggð er og reka
skal á vegum tilrauna hins opinbera, er
ætlað að leysa úr mörgum gátum viðvíkj-
andi hraðþurrkaðri vöru. Þær spurningar,
sem þarna skal leita að svörum við, verða
meðal annars:
1. Hve gróft skal efnið á heykögglum vera
svo að það verki ekki til lækkunar í
fitumagni mjólkurinnar?
2. Hve löng skuli stráin vera í kögglunum
svo að ekki myndist sár eða bris í melt-
ingarfærum skepna, er éta þá?
3. Hve mikið má gefa af heykögglum svo
að ekki verði vart meltingartruflana eða
vaxtartruflana hjá ungviði?
4. Hvaða stærð þurvkunarstöðva er heppi-
legust?
5. Hvernig á að skipuleggja þurrkunar-
stöðvar og starfsemi þeirra?
6. Er hagfræðilega rétt að nota hraðþurrk-
un fremur en aðrar aðferðir við verkun
grass til vetrarfóðurs?
7. Tæknileg atriði og þurrkunarskilyrði
fyrir ýmsar tegundir jarðargróðurs.
í þessu sambandi verða og gerðar til-
raunir með mjólkandi kýr, með vaxandi
geldneyti, og sitthvað fleira.
Tilraunastöð þessi, með tilheyrandi kerf-
uðum vélakosti, krefst í stofnkostnaði jafn-
virði 8,8 milljóna íslenzkra króna.
F R E Y R
371