Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1971, Side 29

Freyr - 01.09.1971, Side 29
ANDRJÉS ANDRÉSSON: Eg kýs heybindivél Andrés bóndi í Berjanesi skrifar um hey- bindivél og notkun hennar eftirfarandi. Ég hefi átt heybindivél í þrjú ár og tel ég það ómissandi verkfæri fyrir mig. Vélin er mjög ámóta fljót að taka upp heyið og heyhleðsluvagninn. Bindivélin flytur ekki heim, en baggana þarf að flytja fljótt inn eða ganga vel frá þeim á teig, ef von er á vætu og vel á að fara. En það eru fleiri hliðar á þessu máli og vil ég lítið eitt ræða þær. Þá er það verkunin á heyinu, hún hefur aldrei brugðist hjá mér, ef ég get náð að flytja baggana inn án þess að nái að rigna ofaní þá. Ég hefi aldrei séð myglu í böggunum en aðeins vott um baggaskil eða utan á þeim, ef hlaðið er sérlega þétt í hlöðuna. Um teljandi blástur hefur ekki verið að ræða og mín reynsla er sú, að baggar þurfi minni blástur en laust hey. Ef hægt er að láta bagga bíða úti í tvo eða þrjá daga, í tvö- eða þrefaldri stæðu, annað hvort í þurki eða þá vel varða svo vatn gangi ekki í þá, hefi ég reynslu fyrir því, að þeir geta létzt um 7 kg bagginn. Hitamyndun virðist mjög ör strax og allt loftar út og heyið heldur sér jafngrænt, en ef baggar eru látnir liggja úti undir rign- ingu, óvarðir, og í þá gengur vatn, er mín reysla sú, að þá sé óhætt að fleygja þeim. Það hvorki nær að hitna í þeim né að þeir mygli, heldur verður heyið svart og að óþverra, sem engin skepna étur. Mætti kannske bjarga svoleiðis heyi með því að leysa baggana strax og setja það allt í blástur. Þannig kynni það að verkast. Þetta skapar þá venju, að sjálfsagt verður talið að ganga strax frá þeim böggum, sem ekki er strax hægt að flytja heim. Það er hægast og bezt á allan hátt að tengja léttan vagn á lágum hjólum aftan í bindivélina, þar stæði einn maður, sem tæki á móti böggunum og raðaði þeim á vagninn, væri svo gafl í að aftan, sem hægt væri að fella niður, setja stroffu fram fyrir baggana og keyra svo vagninn undan þeim. Stæði þá baggastaflinn til hlaðinn eftir sem mætti mæna og breiða yfir og geyma til heimflutnings síðar. Þetta er frekar létt verk og auðvelt. Óhjákvæmi- legt er annað en eiga færiband til að flytja bagga í hlöðu. Það mun kosta um 50 þús. krónur. Fyrir búhagan mann er auðvelt að smíða það og gæti slíkt fært keyptan kostnað niður um helming. Þeir sem flytja laust hey heim telja sér nauðsyn að eiga blásara og mun verð á þeim nú vera svip- að og á færibandi svo þarna virðist enginn auka kostnaður vera við samstæðuna. Þá vil ég minnast á það, sem ég tel aðal ávinning, að hafa bagga en ekki laust hey í hlöðu. I fyrsta lagi sparar það mikið erf- iði og mikla vinnu, svo mikla, að einn maður er fljótari að bera fram hey og' gefa, en tveir eða þrír væru við að stinga og' moka upp og bera fram úr heystæðu. í öðru lagi þarf aldrei að bíða eftir að heyið sígi og bíða þannig eftir heyplássi, auk þess sem hlöðurnar taka miklu meira hey bundið en laust. í þriðja lagi gengur heimflutningur á bögg'um margfallt betur en á lausu heyi og sparar því mikinn tíma, og þá alveg sérstaklega þar sem um tölu- verðar vegalengdir er að ræða, því hægt er að hlaða böggum á vagnana eins og burðarþol þeirra leyfir. Margur er haldinn mikilli heymæði og margir orðið að hætta búskap vegna þess. Þar tel ég að baggar geti verið mikil meina- bót fyrir þá, sem ekki komast hjá því að vera við gegningar, og tala ég þar af eigin reynslu. Það liggur í augum uppi, að minna ryk 377 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.