Freyr - 01.09.1971, Blaðsíða 35
Menn og málefni
Ingóljur Jónsson.
Landbúnaðarráðherrar
Um tólf ára skeið hefur ríkis-
stjórn sjálfstæðisflokksins og
alþýðuflokksins setið við
stjórntauma íslenzku þjóðar-
innar. í júlí s. 1. tók ný stjórn
við völdum, mynduð af fram-
sóknarflokknum, frjálslynd-
um og alþýðubandalaginu.
Við þetta tækifæri urðu að
sjálfsögðu þáttaskil á ráð-
herrastóli landbúnaðarins.
Þar hvarf úr sæti Ingólfur
Jónsson, sem af góðum hug
hefur stýrt málefnum bænda-
stéttarinnar jafn lengi og
stjórnin hefur setið að völd-
um, en sæti hans tók Halldór
E. Sigurðsson, alþingismaður,
sem jafnframt er fjármála-
ráðherra. Hug hans og at-
hafnir í garð landbúnaðar-
mála hlýtur reynslan að sýna
á komandi tímum.
Halldór E. Sigurðsson.
Haraldur Árnason frá Sjávarborg í Skagafirði hefur verið
skipaður skólastjóri á Hólum í Hjaltadal, frá og með 1. júní
s. 1. Haraldur hefur stýrt skólanum frá því 1 janúar s. 1.
vetur er Haukur Jörundsson hvarf frá því hlutverki.
Haraldur hefur hlotið háskólamenntun í Sviss, verið
ráðunautur í Skagafirði, stundað útgerð og verzlun á Sauð-
árkróki og verið stundakennari á Hólum áður.
Umsækjendur um skólastjórastarfið voru 6.
F R E Y R
383