Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1971, Blaðsíða 37

Freyr - 01.09.1971, Blaðsíða 37
Flóra íslenzkra landbúnaðarvísindarita hefur aldrei verið mjög: fjölbreytt. Fyrir rúmu ári hóf göngu sína tímarit, sem nefnist ÍSLENZKAE LAND- BÚNAÐARRANNSÓKNIK. Nýlega hefur mér bor- izt í hendur annað hefti annars árgangs af þessu ágæta tímariti. Efni ritsins ætla ég ekki að gera að umtalsefni hér. Mig vantar fræðilega þekkingu til að ræða þær ritsmíðar, sem þar birtast og leiddust þær því í lestri, ef undan er skilin land- fræðilýsing þeirra Sturlu Friðrikssonar og Jóhanns Pálssonar. í grein Friðriks Pálmasonar um „Áburðarnotkun og vetrarþol vallarfoxgrass" veitti ég að vísu at- hygli, að í texta er vísað til línurits 1, 2, 3 o. s. frv., sem mér virðist að heiti mynd 1, 2, 3 o. s. frv. Þá virðist mér að það komi fyrir í suraum grein- anna. að sömu niðurstöðurnar séu birtar í fyrir- ferðarmikilli töflu og einnig í ennþá stærra línu- riti. Þetta er hlutur, sem mér hefur skilizt á regl- um þessa rits að ætti að forðazt, enda má það kallast að fari illa með góðan pappír. Þetta er sagt annað hefti annars árgangs, en er samt látið byrja á síðu eitt. f flestum öðrum tíma- ritum mun það venja, að blaðsíðurnar séu númer- aðar áfram innan sama árgangs og mun yfirleitt vera talinn kostur, meðal annars í sambandi við samningu skrár yfir heimildarrit. Er vonandi, að þetta verði ekki látið endurtaka sig í framtíðinni. Aðalástæðan til að ég tók mér penna í hönd er þó ekkert af því, sem að framan er getið, heldur langar mig að víkja nokkrum orðum að kostnað- inum við útgáfu þessa rits. Ritið er prentað á mjög vandaðan pappír og ekkert þar til sparað. Kápu- síða ritsins er glæsilegri en er að finna á öðrum sambærilegum ritum í öðrum og ríkari löndum. Er hún Iitprentuð og með nýrri forsíðumynd hverju sinni og minnir helzt á landkynningarrit flugfélag- anna. Þeir lesendur ritsins, sem láta sér mest annt um það, munu Iáta binda það inn. Kápusíðan mun þó oftast hafna í ruslakörfunni. Spurning mín er því hve dýr þessi skrautbúningur ritsins sé? Telja íslenzkir landbúnaðarvísindamenn sig hafa efni á að stunda slíka landkynningu meðan fjármagn, sem veitt er til landbúnaðarrannsókna á fsiandi, er ekki meira en raun ber vitni? Ási 28. júlí 1971, Jón Viðar Jónmundsson. Bændaskóli í Odda Ákveðið hefur verið, að bændaskóli verði stofnaður í Odda á Rangárvöllum og hefur verið skipuð byggingarnefnd til að vinna að undirbúningi og stofnun bændaskólans í samráði við landbúnaðarráðuneytið. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið og biskup íslands hafa samþykkt að skólinn verði reistur í Odda og þar verði látin í té nauð- synleg jarðarumráð. í fréttatilkynningu frá landbúnaðarráðu- neytinu segir, að í lögum sé kveðið á um, að hér á landi skuli vera þrír bændaskólar og einn þeirra skuli vera á Suðurlandi, þegar byggingu skólahúss og öðrum nauð- synlegum undirbúningi sé lokið. Landbúnaðarráðuneytið telur, að bænda- skóla Suðurlands verði bezt valinn staður í Odda og skipaði 8, júlí sl. byggingarnefnd til að vinna að undirbúningi að stofnun bændaskólans í samráði við ráðuneytið. í byggingarnefndinni eiga sæti: HörÖur Bjarnason, húsameistari rikisins, sem er formaður nefndarinnar, Hermann Sigur- jónsson bóndi í Raftholti, Magnús B. Jóns- son ráðunautur á Selfossi og Agnar GuÖna- son ráðunautur. Ullarvöxtur sauöff|árins Wales Plaxit Breeding Station hefur haft með höndum rannsóknir á vexti ullarinnar á sauðfénu og komizt að raun um, að vöxturinn er misjafn eftir því hvaða tegundum beitargróðurs féð nærist af, og svo virðist sem bæði vöxtur og gæði ullarinnar sé háð gróðurfari beitilandanna. F R E Y R 385

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.