Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1971, Side 38

Freyr - 01.09.1971, Side 38
Af O.L A R Búvísindanám í erlendum landbúnaðartímaritum gat að líta ný- lega frásögn um misjöfn viðhorf til aðildar að Efnahagsbandalagi Evrópu. Þar var m. a. getið um mismunandi menntun búvísindamanna í hinum ýmsu löndum, er væri á oddinum. Þetta er til meðferðar vegna hinnar frjálsu atvinnu, sem er liður í bandalaginu. í Frakklandi er námstíminn 3 ár, £ Belgíu 5 ár, í Hollandi 7 ár, en taka ber tillit til þess, að stúd- entsnámið er tveim árum lengra í Frakklandi en í Belgíu, segir þar. Til samanburðar má geta þess, að á Norðurlöndum tekur búvísindanám nú 4—5 ár. Aðalfundur S'téttarsambands bænda verður í ár á Höfn í Hornafirði dagana 28—30 ágúst. Efnahagsleg aðstoð Um áraraðir hefur mikil aðstoð verið veitt til þess að setja súgþurrkunarkerfi í hlöður. Má nú ætla, að því nær allir hafi komið fyrir slíkum búnaði í hlöðum sínum, þeim, sem eru svo stórar, að slíkt sé hagkvæmt. Meðal annars hefur komið í ljós, að þegar féð nærist af vallarfoxgrasi hefur ullin miklu minni eiginleika til að „hlaupa“ (þófna) en þegar féið nærist af öðrum gróðri. Munaði þetta svo miklu, að þegar umræddur eiginleiki var metinn = 100 við venjulega fóðrun var einkunnin aðeins 12 eftir vallarfoxgrasfóðrun um skeið. Þegar svo smára og rýgresi var bætt í fóðrið óx þófnunin að miklum mun. En fóðrunin hafði ekki aðeins áhrif á nefndan eigin- leika heldur og á sjálfan vöxtinn. Sérlega mikill ullarvöxtur fékkst þegar vallarfox- gras og smári var aðalfóðrið. Ýmiss fagrit landbúnaðarins í Evrópu segja frá þessu og tjá einnig, að áframhaldandi tilraunum um þessi efni sé beðið með óþreyju því að þetta er mikið áhugaefni. Nú ætti röðin að vera komin að votheyshlöðun- um, því að framlag til að reisa þær hefur að undanförnu verið óeðlilega lágt, enda hefur allt of lítið verið byggt af þeim. Ekki væri óeðlilegt þótt hér væri veitt opinber aðstoð eins og í Noregi, en Norðmenn veita aðstoð hins opinbera til byggingu votheyshlöðu 60% af kostnaðarverði, þó aldrei meira en 4.000 norskar krónur (48.000 íslenzkar) á bújörð. Að sjálfsögðu ber að krefjast þess, að votheyshlöður séu vel byggðar og að búnaði öllum gerðar samkvæmt kröfum tímans, hvað snertir fráræslu, styrkleika veggja og annað, sem nauðsyn krefur vegna not- hæfni og endingar. Orðsending Reynslan hefur sýnt, að heybruni verður hér og þar á hverju hausti. Með því að mæla hitann í heyinu er auðvelt að vita hvað líður. Nokkrir bændur geta átt mæli í félagi. Agætir heyhita- mælar, cm 2 m langir, fást hjá FOKUS, Lækjar- götu 6 b, í Reykjavík. Spurningar Hver vill svara spurningum fyrrv. bóndans, þeim, er hér fara á eftir? Svörin skal senda til Freys. 1. Hvenær hætta lömbin að þyngjast á haustin í út- haga? 2. Hvað er það mikið tap að láta lömbin ganga imdir góðum mjólkurám fram í októberlok eða lengur? Sé þetta gert, þá verða ærnar verr undir veturinn búnar, og þurfa þar af leiðandi meira fóður. Getur þetta orsakað það að ærin verði síður tvílembd að vori og gefi minni afurðir það árið? 3. Hvað er það mikill gróði að slátra lömbunum sem fyrst á haustin og eiga meiri beit handa ánum yfir veturinn, eða meiri há á túninu til varnar gegn kali, ef kýrnar þurfa hennar ekki með? Líka er háin ágætt skjól fyrir nýgræðingin á vorin og verður hún svo sjálf að áburði. Þetta getur haft mikla hagfræðilega þýðingu á stóru túni. 4. Eru ekki ókostirnir meiri en kostirnir á því að beita lömbunum á ræktað land fyrir slátrun? a. Ræktunin kostar mikið og getur brugðist. b. Bragðið af kjötinu hlýtur að breytast, sérstak- lega, ef um beit á fóðurkál er að ræða. c. Hún eykur offramleiðslu á kjöti. Fyrrverandi bóndi. 386 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.