Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1973, Qupperneq 16

Freyr - 01.08.1973, Qupperneq 16
arkennt, en það er votheysverkunin. Henni hefur fleygt fram svo engin dæmi eru til hliðstæð. Við gerum vothey af 70—90% af grasi sumarsins og verkum það til vetrar- fóðurs, og sumir fóðra eingöngu með vot- heyi og kraftfóðri. Árangurinn af verkun- inni er með ágætum síðan notkun maura- sýru varð almenn. Þetta hefur sín áhrif í sambandi við framleiðslu búsafurðanna. Kjötframleiðslan Hvað snertir kjötið er viðhorfið annað. Nautgripakjötsframleiðslan hefur verið talsverð og er heldur vaxandi, en öðru máli gegnir um kindakjötið, þar er minnkandi framleiðsla. Spurningunni um hvernig á því standi er svarað með því að tjá, að í fyrsta lagi eru rándýr á þessu svæði, sem höggva veruleg skörð í stofninn um beit- artímann, en nauðsynlegt er að nota víð- ernin til beitar eins og hægt er. Að öllu samanlögðu er það þó svo, að samdrátturinn stafar af of lágu verði á kindakjötinu. Bændurnir fá svo sem 10— 12 norskar krónur fyrir hvert kg, misjafnt eftir flokkum, en raunar þyrftu þeir að fá um 15 kr fyrir hvert kg ef afkoman ætti að vera til jafns við það, er fæst fyrir mjólkina. Okkur vantar því kindakjöt og og sama er að segja um svínakjöt, það er ekki framleitt í nægilegum mæli svo að fullnægi eftirspurn. Á síðari árum hefur holdafuglakjöt komið á markað í nokkrum mæli, en segja má að kjötmagn til neyzlu sé við lágmark. Hinsvegar er umtalsverð fiskneyzla í þessum landshluta, eins og eðlilegt er, því að úti fyrir eru góð fiskimið og þau sótt af kappi. Laxinn Já, laxinn! Hann er nú mál málanna hjá okkur eins og raunar víða í Noregi. Þar fer alda um landið og allir hyggja nú og horfa til mikillar framtíðar á því sviði. í ánum okkar fer laxgengd minnkandi enda þótt stórfé sé varið til þess að efla lax- ræktun og laxgengd. Laxastigar eru gerðir og kynbætur og tilraunafóðrun er hafin til að efla þessa grein. Líklegt og eðlilegt má telja, að laxveiðin í sjó, utan fiskveiði- markanna, eigi sinn þátt í minnkandi lax- gengd, en þar veiða skip annarra þjóða lax í miklum mæli. Hið nýjasta á þessu sviði er fengin reynsla með laxeldi í sjó. Þar er hreint kapphlaup á ferðinni. Allir hyggja að grípa mikinn feng og vonandi er þar nýr og álitlegur atvinnuvegur á ferðinni. Og þar er og verður kapphlaup svo um munar. Félagsleg viðleitni miðar að því, að tryggja landeigendum, bændun- um, sinn hlut af ræktuninni og gera þessa búgrein að sem sterkustum þætti. Viðleitni í kynbótum og tilraunafóðrun við Búnað- arháskóla Noregs er ætlað að hjálpa til. En við annað er að etja, það eru stórfyrir- tækin. Nefna mætti ýmsa mjög fjársterka aðilja, sem þar eru komnir af stað, svo sem Norsk Hydro, Martens fóðurvöruverzl- un, og togaraútgerðarfélag eitt, sem þegar hefur ákveðið að nota 17 milljónir norskra króna (þ. e. meira en 260 millj. ísl. kr.) til starfsemi á þessu sviði. Hvernig fer um samkeppni í þessum efnum er alveg óséð, en þeir eru margir, sem ætla sér að nota hvern vog og hvern fjörð til þess að koma upp kvíum og ala þar lax. Og þetta má svo sem verða til þjóðhagslegs gagns, enda þótt verð á laxi máske lækki eitthvað frá því, sem nú er, en það er geysi hátt. Viðleitni er í gangi, og hún umfangsmikil, til þess að skapa sem flestum bændum aðstöðu til að stunda laxræktun sem atvinnugrein. Til þess þarf þó meira fjármagn í upphafi en bændur yfirleitt hafa ráð á. Bændur og búseta Þegar spurt er um bújarðir og bænda- fjölda á umræddu svæði Norður-Noregs, sem hópurinn kom frá, upplýsa þeir fé- lagar, að þar sé mjög mikið fráfall. Á ár- unum í kring um 1960 voru á þessu svæði um 24.000 bændur, en nú eru þeir ekki nema í kring um 10.000. Það er sama sagan 374 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.