Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1973, Blaðsíða 17

Freyr - 01.08.1973, Blaðsíða 17
Meðferð kjarnfóðurs Til þess að gera í stuttu máli grein jyrir nútíma sniði á meðferð kjarn- fóðurs — þ. e. kornvöru, sem notuö er til fóðurs og fer um vélar og annan búnað á kraftfóðurverksmiðjum — skal drepið á eftirfarandi: Hráefnið kemur frá ýmsum löndum heims en fyrst og fremst þó frá Ameríku. Ekki er allsstaðar viðhaft sama fyrirkomulag við móttöku þess á hafnarstöðvum, þetta fer nokkuð eftir því hvort verulegur hluti vör- unnar er fluttur aftur til annarra landa eða vinnslustöðva, sem sjálfar hagræða vör- unni áður en hún fer til vinnslu. Það er nú að verða algengt, að sílóskip, er flytja í einu 30 — 60 þúsund lestir, taka þetta magn í amerískri höfn og skila því 1 Evrópu, mest í stórsíló í Rotterdam eða Hamborg. Á meðan tæming skipsins fer fram eru tekin nokkur sýni af vörunni. Þetta starf er rækt á vegum viðurkenndra rann- sóknastöðva, sem framkvæma rannsókn- irnar vegna landbúnaðarins. Þar er vara efnagreind og gæði vörunnar að öðru leyti staðfest (íblöndun annarra hluta, brotið korn o. fl.) Niðurstöður rannsóknanna fylgja svo með til þess, sem fær vöruna og notar hana til fóðurvinnslu . Frá skipshlið er kominu dælt í síló. Með- altalstölur efnagreiningarinnar eru varð- veittar sem sönnun fyrir meðalgildi vör- unnar og til þess að næsta vöruslatta verði ekki blandað saman við nema að hann sé af hliðstæðum gæðum. Með tilliti til þess að geta tekið við og haft í geymslum mismun- andi vörur að gæðum og gerð, eru sílóin mörg á hverri vinnslustöð. Nútíma síló eru útbúin einskonar hita- mælum, þ. e. hlutum, sem í gegn um þráð senda tilkynningu um hitastigið í mismun- andi hæð hvers sílós. Hitastigið má lesa í stjórnherbergi. Þannig er fylgzt með því hvað gerist í hverju sílói og hvenær gera þarf ráðstafanir til þess að forðast skemmd- ir, en þær felast í því að dæla vörunni milli sílóa og forðast þannig ofhitun og skemmd- ir, sem annars er hætt við, svo sem myglu og samruna. Tæming og flutningur milli sílóa er annars leikur einn þegar allt er framkvæmt með dælum. Frá sílóum er varan síðan flutt yfir í fóðurverksmiðj un a til mölunar og síðar til íblöndunar með öðrum efnum. Á þessari leið er ennfremur viðhöfð hreinsun vör- unnar rétt eins og við tæmingu frá skipi í síló. þar og víðast um Norðurálfu, unga fólkið fer að heiman og kemur ekki aftur og gamla fólkið og hið aldraða gefst upp. Atvinna er svo mikil og góð í bæjunum, að þar þolir búskapur ekki samanburð í efnalegu tilliti. Mjög mikil eftirspurn er eftir mannsafli til byggingavinnu og ann- arrar mannvirkjagerðar, og hefur hinn ný- stofnaði háskóli í Tromsö tekið til sín mjög stóran skerf af því vinnuafli, sem er á landssvæðinu, en þar er fjárfesting í stór- um stíl. Og litið á heildina má segja, að það sé þéttbýlið, sem verkar eins og segull á unga fólkið, rétt eins og gerist miklu víðar. Hvort sveitirnar byggjast aftur verður ekki sagt með neinni vissu, en þar eins og annarsstaðar verður það vélrænn búskapur, sem hlýtur að ráða en ekki gamla búskaparlagið, það kemur varla aftur. Hinsvegar getur það skeð, að nýjar framleiðslugreinar mótist. Má þar aftur nefna laxinn, ekki sízt ef vel tekst til með skipulagningu þeirrar búgreinar til fram- dráttar þeim, sem framvegis vilja viðhalda dreifðri byggð við víkur og firði hinnar vogskornu vesturstrandar Noregs. F R E Y R 375

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.