Freyr - 01.08.1973, Qupperneq 34
Er maturinn dýr?
Um hádegisbilið sátum við og ræddum
saman yfir saumum eða öðrum frístunda-
störfum. Þá var það einn daginn, að frú
Úrsúla, en svo hét konan, sagði okkur, að
í gærkvöld hafi hún og maður hennar verið
úti á göngu og komið að verzlun þar sem
humar var til sölu. „Og við keyptum hum-
ar og gerðum okkur veizlu þegar heim
kom,“ sagði hún.
Mér varð að orði: Hvílík hagsýni, að
kaupa humar í miðri viku og efna til
veizlu á fimmtudagskvöldi.
Seinna um daginn kom svo Úrsúla til
lega höfum við sérstöðu um sitthvað, eink-
um það er snertir harðviðri, en hér eru ekki
kaldari vetur en víða gerist á norðlægum
slóðum. Þegar ég á sínum tíma benti á
nauðsyn þess að hafa tvöfalda glugga í
fjósum var því sumstaðar tekið fálega. Þá
þegar voru ekki veitt lán út á fjós í Sví-
þjóð nema í þeim væru tvöfaldir gluggar.
Nú hafa vonandi flestir hér tvöfalt gler í
þeim peningshúsum, sem eiga að vera hlý
og eru einangruð með tilliti til þess.
Auðvitað er rörmjaltakerfi í fjósinu
á vorum dögum, það er atriði, sem mikið
veltur á í því efni hvort mjólkurframleiðsl-
an er arðbær eða ekki.
í byggingamálum er miklu fremur hægt
að nota niðurstöður erlendra tilrauna og
rannsókna en í mörgu öðru, er varðar að-
stöðu og tilveru á íslandi, og meira að segja
er ástæðulaust að vera að bauka með slíkt
hjá þjóð, er telur aðeins 200 þúsund íbúa,
nema í þeim efnum, sem eru sérstæð fyrir
okkar land. Og kerfun, með tilliti til vinnu-
hagræðingar, er ósköp álíka hér og ann-
arsstaðar, en kerfunin og tæknin kostar
fjármuni. Við þau atriði hafa ýmsir verið
skelkaðir og ekki hugsað svo langt, að slík
fjárfesting sparar vinnuafl í daglegri notk-
un bygginganna. Þar veltur á miklu á vor-
um tímium. Og aukinn stofnkostnaður til
hagræðingar er einatt fljótur að endur-
heimtast við spöruð ómök og aukin afköst
í daglegum rekstri. — G.
392
F R E Y R