Freyr - 15.04.1986, Page 8
Með silfurrefi og sauðfé
Rætt við feðgana á Hofi í Vatnsdal.
I|®i|
Á hinu gamla höfuðbóli á Hofi í Vatnsdal búa hjónin Gísli Pálsson og Vigdís
Ágústsdóttir félagsbúi með Jóni syni sínum. Þau búa með sauðfé og silfurrefi.
Silfurrefirnir hafa verið í sóttkví þar á Hofi síðan þeir voru fluttir hingað til lands fyrir
tveimur árum.
Feðgarnir á Hofi eru báðir miklir
áhugamenn um loðdýrarækt.
Fréttamaður Freys kom að Hofi
og spjallaði við þá um loðdýra-
rækt og fleira.
Eina silfurrefabúið
Fyrst hitti ég Jón að máli og spurði
hann hve marga refi hann hefði á
búinu.
288 Freyr
Það eru 94 læður, fullorðnar og
45 högnar. Við erum með silfur-
refi og platínurefi sem er afbrigði
af silfurref. Við höfum þrjá
platínuhögna og fimm platínulæð-
ur, hitt eru allt silfurrefir.
í ár komust upp 229 hvolpar
2,44 á ásetta læðu.
Hvenær byrjuðuð þið á loð-
dýrarækt?
í desember 1983.
Þið notið gömul fjárhús, en haf-
ið þið líka reist refaskála?
Já við byggðum fyrst 440 m2 hús
við hliðina á fjárhúsi sem er 240
fermetrar. Fyrra árið var nýi
skálinn notaður einn, en í fyrra
vetur notaði ég líka fjárhúsið fyrr-
verandi.