Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.04.1986, Qupperneq 12

Freyr - 15.04.1986, Qupperneq 12
Loðdýrarækt styrkir byggðina Hún auðveldar kynslóðaskipti á jörðum Gísli Pálsson, bóndi á Hofi í Vatnsdal er áhugasamur um loðdýrarœkt. Hann segir að það auðveldi kynslóðaskipti að vera með tvœr búgreinar. Tíðindamaður Freys átti tal við Gísla um loðdýrabúskap og fleira. Gísli, nú er Vatnsdalur talinn einn af góðsveitum þessa lands og hefðbundinn búskapur stend- ur þar föstum fótum. Þá vaknar spurningin hvers vegna þú, bóndi á gömlu höfuðbóli ferð út í loðdýrarækt. „Já þetta er eðlileg spurning, því við höfum verið með gott fjárbú í 20 ár, en vorum áður með blandað bú, ástæðurnar fyrir þessu eru einkum þrjár: Það auðveldar kynslóðaskipti að vera með tvær búgreinar og þá komu loðdýrin til greina og í öðru lagi hefur Jón sonur minn mikinn áhuga fyrir loðdýrarækt og sjálfur hef ég áhuga á henni. í þriðja lagi er offramleiðsla á kindakjöti og útlit er ekki bjart í sauðfjárrækt." Afréttarlönd ofnýtt. „Það er staðreynd að við erum búnir að ofnýta afréttarlönd hér yfir lengri tíma og það verður sífellt dýrara að framleiða kinda- kjöt. Úr því ég er farinn að tala um landþrengsli“ segir Gísli, „vil ég geta þess að í þeim efnum verða mikil umskipti hér á 7. áratugn- um. Fénu fjölgaði, kúabúum fækkaði. Og annað, sem hafði einnig veruleg áhrif: Við hættum að rýja á vorin, rúðum á veturna og það varð mikil ásókn í það að reka fyrr á heiði heldur en gert var áður. Við áttuðum okkur ekki á því hvað við vorum að gera og ég var sjálfsagt ekkert betri en aðrir. Við vorum farnir að reka á heiði fyrir miðjan júní sem þýddi það að féð tók nýgræðinginn um leið og hann kom. Þetta hafði veruleg áhrif og nokkrir bændur sáu fram á það á ofanverðum sjöunda ára- tugnum á verstu kalárunum að þetta gat ekki gengið svona lengur. Og það voru mjög hávær- ar raddir um það meðal sveitar- stjórnarmanna hér í Áshreppi að takmarka tímann og takmarka beit hrossa. í fyrsta íagi að reka seinna heldur en við höfum gert og það yrði bara bundið við vissa daga. í örðu lagi að hrossum yrði fækkað mjög í afrétt og beitartími þeirra á heiðinni styttur og stefnt að því að hætta að beita þeim á afrétt og taka fé frá afréttargirð- ingum eftir 20. ágúst. Þrátt fyrir þessa viðleitni sveitarstjórnar- manna hér fékkst þetta ekki þá, en nokkuð hefir miðað í rétta átt, hin síðari ár. Nú er búið að ákveða ítölu, sem er okkur ákaflega erfið, það hefði verið betra fyrir okkur að takmarka sjálfir tímann. Þetta ástand er ein af ástæðun- um fyrir því að við förum út í loðdýrarækt, að við sjáum fram á að þessi búgrein, sauðfjárræktin, á mjög erfitt uppdráttar hér. Hér á árum áður var Gríms- tunguheiði talin besta heiðin hér á svæðinu. Hún er þurrlend og við- kvæm fyrir ofbeit. Nú er hún talin lélegt afréttarland. Svo er það offramleiðslan á kindakjöti. Við erum búin að berjast við hana lengi. Á síðustu árum hefur stöðugt verið verri og verri útkoma og í raun og veru held ég að flest sauðfjárbú hér, miðað við þær ástæður sem ég hef verið að telja fram og aðrar fleiri, séu rekin með tapi.“ Kvóti sé ákveðinn eftir því hvað jarðir bera. „Ég er þeirrar skoðunar að það verði að skipuleggja þessi mál mikiu meira en gert hefur verið. Það er verið að setja kvóta á Hof íVatnsdal. Handan ár eru Brúsastaðir og Snœringsstaðir. (Ljósm. Freyr, J. ]. D.). 292 Freyr

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.