Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1986, Blaðsíða 14

Freyr - 15.04.1986, Blaðsíða 14
tel ég aö styrkur í þessa veru veröi mönnum hvati tii að breyta til.“ Nú gildir þetta framlag til loð- dýraræktar bara í tvö ár þ. e. 1985 og 1986. „Já, með þessari nýju laga- breytingu. En þá koma bara ný viðhorf. Það á að sveigja lögin til eftir þörfum hverju sinni en á það hefur alveg skort í landbúnaðar- málum. Eg er nú búinn að vera á þrem búnaðarþingum og á hverju þingi hefur verið samþykkt tillaga um stuðning við loðdýrabyggingar alveg á hliðstæðan hátt og við aðrar, en þetta er það fyrsta sem maður sér í þessa átt. Stjarfi í kerfinu er kannski það erfiðasta í landbúnaði.“ Vonir bundnar við nýja blendinga í refarækt „Ég tel að í refarækt séu miklir framtíðarmöguleikar í nýjum af- brigðum, nýjum blendingum. J>að á að nota íslenska fjallarefinn, blárefinn og svo silfurrefinn. Og ég fagna mjög þeirri nýbreytni, sem tekin hefur verið upp með því að fanga íslenska fjallarefinn og setja upp bú að Möðruvöllum í Hörgárdal, þar sem þeir dr. Stef- án Aðalsteinsson og dr. Páll Her- steinsson stjórna kynblöndun og kynbótum á refunt. Nú eru komn- ir þangað á Möðruvelli um 120 íslenskir refir víðsvegar að af landinu. Nú eru hér til sextíu-sjötíu silf- urrefahögnar sem nota má við að sæða blárefalæður. Ég tel að við eigum þarna þegar mikla mögu- leika og að okkur beri að nýta þá eins og hægt er. Á síðustu upp- boðunt í Finnlandi var verðmunur á skinnum á bláref og blásilfurref, sem er afbrigði silfurrefs og blá- refs þessi: Blárefaskinn seldust á 2 100 kr. að meðaltali, en skinn af blá-silfurref á 4 000 kr. Ef sjötíu högnar færu á sex-átta sæðingarstöðvar á landinu og und- an hverjum högna vægt reiknað 30—40 hvolpar, þá gæti þetta í útflutningsverðmæti numið nokkrum milljónum króna. Penn- an möguleika eigunt við að nota og það verður gert. Á fundi loðdýraræktar (SÍL) á Akureyri í sumar var skipuð þriggja manna nefnd til þess að setja upp sæðingarstöð til þess að nýta sent best þá silfurrefi sem hingað eru komnir. Nefndin nýtur aðstoðar Eggerts Gunnarssonar, dýralæknis og Þorsteins Ólafs- sonar, dýralæknis, en sá fyrr- nefndi fór utan í fyrra til þess að læra sæðingar refa. í þessari nefnd eru, auk mín Ævarr Hjartarson og Jón Ragnar Björnsson. Það hefur verð rætt ntikið um aukabúgreinar og að bjarga þurfi dreifbýlinu. Loðdýraræktin getur ekki ein sér bjargað dreifbýlinu en hún getur átt drjúgan þátt í því að viðhalda byggð. Henni eru þó tak- mörk sett. Til dæmis er kjöt- úrgangur, sem notaður er í loð- dýrafóður, takmarkaður. Ég hef engar tölur á reiðum höndum um hvað væri eðlilegt að fjölga loðdýrum hér í austursýsl- unni mikið, ég held að það verði að fara rólega í það, en álít þó að loðdýrabúum hafi fjölgað hér of hægt að undanförnu. Nú eru að- eins sex loðdýrabú í héraðinu en líklega væri hæfilegt að þau væru fimmtán til tuttugu ef rniðað er við fáanlegt hráefni á Blönduósi og Skagaströnd handa loðdýrum,“ sagði Gísli að lokum. J. J. D. *• Molar Lyf í fóðrí. Svo sem flestum mun kunnugt hafa um áraraðir verið í gildi lög hér í landi, er kveða á um að óheimilt sé að selja fóðurvörur, sem blandaðar eru lyfjum. Senni- lega eru íslendingar fyrsta þjóðin, sem beitir lagavernd á þessu sviði, en Svíar munu fylgja á eftir um næstu áramót. Suður um Evrópu þekkjast ekki hliðstæðar ráðstafanir og þar geta bændur sjálfir útvegað sér lyf til að blanda í fóður. Orð fer af því að danskir bændur leiti þangað eftir efnum til íblöndunar, en þar í landi er lyfjanotkun annars háð ákvörðunum dýralækna hverju sinni svo að ekki mengist útflutn- ingsvörur sem fara til neyslu með- al þjóða, sem hafa strangt eftirlit með lyfjaleifum í matvöru. Danir yfirvega nú að beita háum sektum ef slíkar leifar finnast í svínakjöti, því að markaður fyrir þá vöru í Bandaríkjunum er í hættu ef lyfja- leifar finnast í kjötinu. 294 Freyr

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.