Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1986, Síða 16

Freyr - 15.04.1986, Síða 16
fljótlega heimiluð á ný og þá á breiðum grundvelli. Minkarækt var svo heimiluð með lögum frá Alþingi í lok ársins 1969. Hins vegar voru ýmis ákvæði í þeim sem voru þannig að loðdýrarækt gat hvorki orðið aðalbúgrein né aukabúgrein hjá bændum. Til dæmis voru sett ákvæði um lág- marksstærð bús en ekki hámarks- stærð. Minnsta bú mátti vera 250 minkalæður og það var kostnaðar- samt að koma slíku búi upp. Þá var líka í lögununt ákvæði um að ekki mætti reisa búið nær byggðu býli, sem kallað var, en þúsund metra. Af slíku ákvæði var óhag- ræði. Og það var margt annað. Það voru reglur um vörslugirðing- ar um loðdýrabú sem voru þannig að þær kostuðu kannski þriðjung af allri byggingunni. Netgirðingar þurfti t.d. að ná einn metra ofan í jörðina. Hins vera reyndust þessar girð- ingar fyrir norðan algerar snjó- gildrur, þannig að þó að hvergi væri snjór á flatlendi þá fennti fljótt að girðingunum og snjórinn lagðist alveg að húsunum. Ýmis- legt annað gerði það að verkum að það var ekki fýsilegt fyrir bændur að fara úr í loðdýrarækt. En hvað um það, áhugamenn Sölusamtök norrænna loðdýrabœnda. Saga Furs of Scandinavía, auglýsa vöru sína á margvíslegan hátt, m. a. með vönduðum myndskreyttum bœklingum. Paðan eru þessar myndir teknar. beittu sér fyrir því að stofna nokk- ur hlutafélög um loðdýrarækt, og á árunum 1969—1972 voru reist níu eða tíu loðdýrabú víðsvegar um land. Menn virtust vera svo vissir um að þetta myndi borga sig, að það var lítið unnið að því að skapa hinni nýju búgrein rekstrargrundvöll, og skilningur valdhafa var lítill á því. Til dæmis voru meira en 100 % gjöld á netum og öðru. Það voru háir tollar, söluskattur og vörugjald á búnaði til loðdýrabúa. Gjöld til Stofnalánadeildar landbúnaðarins og búvörugjöld voru hærri á þessu en af hefðbundnum búskap. Fjár- festingarkostnaður varð því gífur- lega mikill. Kunnu menn sem þá unnu við þessa búgrein til verka við hana? Hvatamenn þeir sem stofnuðu og reistu búin kunnu það yfirleitt ekki sjálfir, en þeir ætluðu að byggja þetta upp sem atvinnu- rekstur með aðfengnu vinnuafli. Og flestir þeirra komu ungum mönnum til náms í loðdýrarækt í Noregi, enda var það skilyrði sett í lögin að þjálfaður minkahirðir ynni við hvert minkabú. Og en eitt af því sem hindraði að bændur gætu sjálfir farið út í þessa atvinnugrein var það að þess var krafist að sá sem færi í loð- dýrarækt hefði svo og svo langa þjálfun í loðdýraeldi. Lifðu þessi minkabú lengi ? Nei, þau lifðu flest stuttan tíma. Og það sem olli því var að mínu mati að fjármagnskostnaður við þau var mikill, eigendurnir unnu yfirleitt ekki sjálfir á búunum og það sem e.t.v. skipti sköpum var að hver baukaði í sínu horni. Því hafði verið komið inn hjá loðdýra- ræktendum að þetta væri sam- keppnisbúgrein og menn virtust skilja það þannig að þeir ættu að vera í samkeppni hver við annan. Sjálfur varð ég alveg gáttaður þegar ég kynntist þessu viðhorfi. Menn virtust ekki miðla hver öðrum þekkingu og reynslu, held- ur létu í veðri vaka hvað þetta gengi nú vel hjá sér, voru að spreyta sig án þess að miðla öðrum. Og svo þurftu þessi fyrrnefndu loðdýrabú, sem voru mjög dreifð flest að koma sér upp hvert sinni fóðurstöð, með frysti og tækjum sem gátu framleitt miklu meira fóður en þurfti að nota á hverju búi. Og það var dýrt spaug. Hvað um leiðbeiningar til þessara manna ? Leiðbeiningar voru engar í upp- hafi. Hins vegar voru eins og ég gat um áðan sendir menn til Nor- egs til þess að kynna sér greinina og sumir fengu erlenda menn til þess að vinna á búunum meðan verið væri að þjálfa íslendinga. Það var m.a. sett í lögin að loð- dýraræktendur skyldu mynda með sér samtök. Þessir níu aðilar sem stofnað höfðu minkabú komu saman árið 1971 og mynduðu Samband íslenskra loðdýrarækt- enda, skammstafað SÍL. Á fyrsta fundi þess var ákveðið að leita eftir því við Búnaðarfélag íslendingar að það fengi ráðunaut í loðdýrarækt. Þá var einnig líka samþykkt að leita eftir því að Islandar gerðust aðilar að því sem kallað var þá Samnorræni skinna- markaðurinn í Glostrup í Dan- mörku. Þá voru uppboð í Kaup- mannahöfn og Osló. 296 Freyr

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.