Freyr

Volume

Freyr - 15.04.1986, Page 19

Freyr - 15.04.1986, Page 19
sambandanna, og vinnur að mark- aðssetningu loðskinna, t.d. með auglýsingum og kynningum á af- urðum í samstarfi við feldskera og tískuhús heimsins. SAGA sér einnig um markaðs- rannsóknir, leitar nýrra markaða og kemur upplýsingum á framfæri við bændur um horfur og breyt- ingar á markaðnum fyrir loðskinn. Hver var fr amkvæmdastj óri um þetta leyti ? Við gerðum okkur grein fyrir því að margt þyrfti að vinna og stjórn- armenn sem voru önnum kafnir við sín bú hefðu engin tök á að vinna allt sem þyrfti að gera. Við byrjuðum á því að ráða okkur mann í tímabundið hluta- starf til að taka á móti skinnum og senda þau til Danmerkur, taka við og að sjá um uppgjör vegna þeirra. Um leið fórum við að reyna að beita okkur að því við forystumenn landbúnaðarins að loðdýrarækt yrði alvöruvalkostur. Við gengumst fyrir ferðum til Danmerkur og Noregs og fengum í þær ýmsa forystumenn úr land- búnaðinum. Við réðum okkur framkvæmda- stjóra í hálft starf til að byrja með. Sá maður var Jón Ragnar Björns- son, en hann vann þá í hálfu starfi hjá Markaðsnefnd landbúnaðains. Við röðuðum málunum í ákveð- inn forgang, hverju skyldi reynt að vinna að. Við töldum að ef loðdýrarækt ætti að þrífast hér yrði að búa henni sömu skilyrði eins og hún byggi við annarsstað- ar. t>á gæti hún orðið öflug bú- grein hér. Ríkisvaldið mætti ekki skattleggja þessa búgrein mikið, en það mundi fá gjaldeyristekjur í staðinn. Til þess að gera langa sögu stutta hefur á þessum fjórum árum smásaman tekist að fá aflétt flestum þeim gjöldum sem ríkis- valdið hefur lagt á aðföng, bygg- ingarefni og annað til loðdýra- ræktar. Pau gjöld voru yfir 100% en nú eru þau engin. Fyrst fengum við niðurfelldan söluskatt, vöru- Sigurður Helgason loðdýrabóndi á Grund á Höfðahverfí með vcenan tófu- belg. gjald og toll af netum og síðan af ýmsum tækjum, Við náðum því að fá endurgreiddan svonefndan uppsafnaðan söluskatt, sem nam söluskattstofni af byggingum. Og nú er búið að semja reglugerð um að söluskattur verði felldur niður af nýjum byggingum í loðdýra- rækt. Og nú er loðdýrarækt studd með ákvæðum í nýju jarðræktarlögunum. Já, þá er einnig gert ráð- fyrir ákveðnu framlagi, sem er miðað við ákveðna fermetratölu og áfanga við uppbyggingu loðdýra- ræktar. Skilningur manna á loðdýra- rækt og þörf fyrir aðra möguleika í sveitum hefur orðið til þess að greiða fyrir þessari atvinnugrein. Bændur sem hafa farið út í loð- dýrarækt hafa skynjað að vel- gengni hennar byggist á því að þeir vinni saman, miðli öðrum af sinni reynslu af því sem vel fer. Loðdýraræktin er samkeppnisbú- grein og bændur þurfa að vinna vel saman inn á við svo að þeir séu samkeppnishæfir út á við. Við beittum okkur því fyrir því að stofna sölusamtök sem við köllum Hagfeld. Það er samvinnu- félag loðdýraræktenda, sem ann- ars vegar hefur það markmið að útvega bændum rekstrarvörur þær sem þeir þurfa til loðdýraræktar. Hins vegar að taka á móti skinnum þeirra og koma þeim í verð. Ég tel mikilvægt að hagnað- ur af loðdýrarækt haldist innan hennar hvort heldur hann er af þjónustu eða sölu. Ég vil taka mér í munn orð formanns Evrópusamtaka bænda, en hann lýsti því yfir að besta vörn bænda í yfirstandandi erfiðleikum væri samvinnufélög þeirra, sem gætu snúið straumi fjármagns við, til uppruna síns. Það verður sífellt erfiðara fyrir hráefnisframleið- andann að njóta hagnaðar. Hagn- aður getur að vísu myndast við hráefnisframleiðslu, en það eru meiri líkur til þess að hann mynd- ist annað hvort við þjónustuna eða verslunina eða iðnaðinn. Þess vegna verða bændur að hafa eitt- hvert verkfæri sem getur snúið þessu til baka. Og þess vegna er svo mikilvægt fyrir loðdýrabændur að þeir hafi tök á þessu öllu saman. Norrænir loðdýrabændur eiga sín uppboðshús. Þeir reka ýmis fyrirtæki sem selja bændum þjónustu. Þannig reyna þeir að veita hagnaðinum sem myndast aftur til bændanna. Skipta íslenskir loðdýrabændur mikið við Hagfeld ? Þeir gera það í vaxandi mæli. Það er að sjálfsögðu engin kvöð. Sumir bændur hafa sent sín skinn til umboðsmanns Hudson-Bay og þarmeð til Lundúna. Sá hagnaður sem verður af þeirri umboðssölu kemur ekki í sama mæli inn í loðdýraræktina aftur eins og sá hagnaður sem verður af umboðs- sölu skinna til Danmerkur. Sam- band íslenskra loðdýraræktenda, getur þá með öflugra starfi unnið í þágu félagsmanna sinna eða greitt hagnað beint til bændanna sjálfra. Hið sama á við um vörukaup. Ef hagnaður verður á þeim þá Frh. á bls. 311. Freyr 299

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.