Freyr

Volume

Freyr - 15.04.1986, Page 26

Freyr - 15.04.1986, Page 26
Nú ert þú búinn að kaupa jörð og farinn að reisa þar skála mikinn og ætlar að stækka loðdýrabúið um helming. Já, það er margt sem rekur á eftir mér með það. Það hefur verið rætt um flutning á búinu héðan frá Böggvisstöðum. Þær viðræður strönduðu að vísu í bili. En það barst eiginlega land upp í hend- urnar á mér, sem var nauðsynlegt til að geta flutt búið. Ég neita því ekki að ég er að vinna að því að flytja starfsemi í Ytra-Holt, ekki kannski að flytja loðdýrabúið þangað alfarið, en ég þarf að byrja á því að fara með eitthvað af dýruin þangað, hvað sem öðru líður. Það er óhagkvæmt að vera þar með fá dýr. Ég þarf að reisa þar hús fyrir þá lágmarks aðstöðu sem þar þarf að vera og það kostar sitt. Ég hef í huga að fara með alla refaræktina þangað frameftir og stækka minkabúið á Böggvisstöðum. I Ytra-Holti ætla ég að reisa 4500 m2 skála núna. Verður þar refur eingöngu? Ég flyt refinn þangað, en fjölga mink á Böggvisstöðum í því hús- næði sem þar losnar. Og þú hyggur gott til framtíðarinnar? Já, loðdýraræktin gengur vel hjá mér, en þetta er ennþá í uppbygg- ingu. Ég er auðvitað ennþá að glíma við vandamál og skuldir fyrri ára, en framtíðin lítur vel út, sýnist mér. Hvað hafa margir atvinnu af atvinnurekstri þínum? Það vinna 25 manns við skinna- verkun og hirðingu þá tvo mánuði sem verkun stendur yfir. Ég gæti trúað að fimmtán fjölskyldur hafi að jafnaði atvinnu við þetta brölt í mér, að uppbyggingunni meðtal- inni. Þetta er orðinn verulegur þáttur í atvinnulífi hér í plássinu. Menn hafa þokkaleg laun við þetta. Samkvæmt tölum frá þjóð- hagsstofnun eru tekjur manna af landbúnaði í lögsagnarumdæmi Dalvíkur um 40% yfir landsmeð- altali af tekjum í landbúnaði, og hér á loðdýrarækt drýgstan þátt- inn, sagði Þorsteinn Aðalsteins- son að lokum. J. J. D. I I Við Dalvíkurhöfn. Fóðurstöð eyfirskra loðdýrabœnda er í húsaþyrpingunni miðri. 306 Freyr

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.